Fréttir

Hinseginfáninn verður aftur málaður á tröppur Grafarvogskirkju

Mynd
Tröppurnar fyrir málun. Mynd/Grafarvogskirkja

Íslenski fáninn var málaður á tröppur Grafarvogskirkju í nótt yfir hinseginfánann. Nútíminn greinir frá þessu en ekki liggur fyrir hver eða hverjir stóðu að verknaðinum.

RÚV hefur eftir séra Örnu Ýrr Sigurðardóttur að þetta hafi ekki verið gert á vegum kirkjunnar. Á næstu dögum hyggst kirkjan safna saman fólki til að mála hinseginfánann aftur á tröppurnar. „Þetta er ágætis hvatning fyrir okkur til að gera það. Nú munum við vinda okkur í það.“

Ekki liggur fyrir hvað viðkomandi gekk til en mikið var rætt um þjóðfánann og hinseginfánann í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í vor.