Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á brunanum á meðferðarheimilinu Stuðlum, sem varð 19. október árið 2024, er lokið eftir rúma 20 mánuði í rannsókn.
Mbl greinir frá og hefur eftir Elínu Agnesi Kristínardóttur Eide, yfirlögregluþjóni á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, að málið hefur verið afhent ákærusviði til meðferðar. Elín Agnes segir gagnaöflun í málinu hafa tekið töluverðan tíma, sum þeirra hafi ekki skilað sér ekki fyrr en nýlega.
Geir Örn Jacobsen, 17 ára, lést í brunanum og starfsmaður Stuðla slasaðist.
Tíu eru með réttarstöðu sakbornings í málinu.Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins nær hópur sakborninga út fyrir Stuðla og Barna- og fjölskyldustofu, sem rekur meðferðarheimilið. Heimildir herma þó að í það minnsta tveir starfsmenn séu í þessum hópi. Fjöldi sakborninga getur breyst við meðferð á ákærusviði en í framhaldinu verður tekin ákvörðun um hvort gefnar verði út ákærur í málinu.
Nánar má lesa um málið á Mbl.is.