Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins í Bretlandi, Reform UK, ætlar að segja af sér sem þingmaður og knýja fram aukakosningar þar sem hann ætlar að bjóða sig aftur. Enginn hinna stóru stjórnmálaflokkanna ætlar að bjóða fram á móti Farage og virðist því allt stefna í að eini mótherjinn í kosningunum í Clacton-kjördæmi verði Count Binface, grínisti sem gengur um með hjálm í líki öskutunnu.
Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra, rýnir í stöðu Farage á bloggi sínu í dag. „Hann stendur frammi fyrir rannsóknum vegna fjárframlaga til stjórnmálastarfs síns. Í stað þess að bíða niðurstöðu athugunar í breska þinginu ákvað hann að efna til pólitísks sjónarspils með því að boða aukakosningar í eigin kjördæmi og lýsa þeim sem uppgjöri milli almennings og hins pólitíska valdakerfis,“ segir Björn. „Tilraunin misheppnaðist þegar helstu andstæðingar hans neituðu að taka þátt og sögðu um sýndarkosningar að ræða.“
Líkt og fjallað var um nýverið er Farage í miklum vanda eftir að upplýst var um að hann hefði árið 2024 þegið 5 milljónir punda af tælenskum milljarðamæringi, án þess að upplýsa um gjöfina.
Sjá frétt: Er Nigel Farage búinn að vera?
Flokkur Farage, Reform UK, hefur mesta fylgi samkvæmt skoðanakönnunum, en síðustu kannanir sýna flokkinn með um 25%. Flokkurinn er þjóðernissinnaður og andsnúinn Evrópusambandinu, enda var Farage einn af helstu baráttumönnum fyrir Brexit – útgöngu Breta úr sambandinu.
Gefandinn er bresk-taílenski milljarðamæringurinn Christopher Harborne, sem auðgast hefur á rafmyntabraski. Harborne er líka helsti styrktaraðili Reform UK flokksins og hefur ausið í hann tugum milljóna punda.
Count Binface, eða Tunnufés greifi, kveðst berjast fyrir vetrarbrautina og hefur það markmið að byggja „eitt húsnæði á viðráðanlegu verði“. „Látið mig sjá um hann,“ sagði hann í yfirlýsingu til Verkamannaflokksins, Íhaldsflokksins og Frjálslyndra demókrata.
BBC tók hann tali: