Sólborg Guðbrandsdóttir, rithöfundur, bendir á svimandi há laun talsmanna Áfram Íslands. Spyr hún hvaða hagsmuni þeir séu raunverulega að verja.
„Ólafur Ragnar var með rúmar 4,7 milljónir króna í mánaðartekjur árið 2024 samkvæmt Tekjublaðinu og á meðan Halldór Benjamín starfaði sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins voru mánaðartekjur hans tæpar 4,3 milljónir króna, sem gerði hann að einum launahæsta starfsmanni hagsmunasamtaka,“ segir Sólborg í færslu á samfélagsmiðlum.
Ólafur Ragnar og Halldór Benjamín eru á meðal talsmanna samtakanna Áfram Ísland sem voru stofnuð í gær til þess að beita sér fyrir því að Íslands fari ekki í samningaviðræður við Evrópusambandið.
„Það er um að gera að spyrja sig hvað svona háværir menn eru raunverulega að verja,“ spyr Sólborg um raunverulegan tilgang samtakanna.