Þórður Már Sigfússon skipulagsfræðingur segir liti eitt vanmetnasta verkfæri borgarskipulagsins. Í grein sinni á Vísi bendir hann á að Sigvaldalitirnir séu meira en skraut.
„Sigvaldalitirnir; gulur, djúpblár og hvítur, þetta eru litir sem eru meira en skraut. Þeir eru sjónræn undirskrift. Maður sér litina og hugsar: þetta er Sigvaldahús. Formið er vísbending en litapallettan staðfestir höfundareinkennin. Sigvaldi Thordarson.“
Segir Þórður Már slík einkenni minna okkur á að arkitektúr og borgarskipulag „snúast ekki aðeins um húsform, fyrirkomulag byggðar, hlutföll, skala, fagurfræði eða virkni. Litir, áferð, birta og minni eru ekki síður mikilvægir þættir.“
Hann segir gamla bæinn í Gdansk í Póllandi gott dæmi um þetta á stærri skala.
„Þar verður staðarandinn ekki til í einni byggingu, heldur í samspili heildarinnar: mjórra húsa, fjölbreyttra framhliða, margvíslegra lita, skýrra göturýma og sterkrar tilfinningar fyrir röð og hrynjanda. Litirnir blása lífi í götumyndina. Formin gefa henni takt. Göturýmin halda henni saman.
Styrkleiki staðarins felst í þessu samspili, þ.e. fjölbreyttri byggð sem verður aldrei tilviljanakennd, ríkulegum smáatriðum sem raska ekki heildinni og svipmiklum en hljóðlátum karakter.“
Þórður Már bendir á að í borgarskipulagi er oft horft til götureita, landnotkunar og þéttleika byggðar. Hann segir liti og efniskennd hafa ekki síður áhrif á það hvernig fólk upplifir staði.
„Borgir markast af línum en þær skerpast í ljósi, litum og staðaranda. Kannski er litur eitt vanmetnasta verkfæri borgarskipulagsins.“