Fréttir

Sérsveitin kölluð til í AirBnb íbúð þar sem nauðgun hafði átt sér stað – Ökumaður með hníf á lofti

Mynd
Maðurinn hafði skorið sig með flökunarhníf þegar konan vildi hringja á lögregluna.

Erlendur karlmaður, Wenwei Zhang að nafni, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun á konu sem var á ferð um Ísland. Nauðgunin átti sér stað í AirBnb íbúð á nýársdag árið 2024.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að fá liðsinni sérsveitarinnar þegar Wenwei var handtekinn. Tilkynnt var um að maður væri vopnaður eggvopni og hefði veitt sér áverka með flökunarhníf.

Fann lögregla einnig konu sitjandi á rúmi og reyndist það vera brotaþoli í málinu. Kemur fram að íbúðin hafi verið óþrifaleg og áfengisumbúðir út um allt.

Í íbúðinni voru einnig hjón sem greindu frá því að vera eigendur íbúðarinnar. Þau hefðu leigt hana út á skammtímaleigu á AirBnb.

Ökumaður vinahóps frá sama landi

Við yfirheyrslur kom í ljós að Wenwei var ökumaður hinnar erlendu konu og vinahóps hennar. Hópurinn, sem er frá sama landi og hann, hefði dvalið í íbúðinni.

„Vinir brotaþola hefðu farið af stað til Keflavíkurflugvallar
um kl. 3 aðfaranótt nýársdags til að ná flugi og ákærði ekið þeim þangað. Hann hefði snúið aftur um tveimur tímum síðar og haft meðferðis áfengisflöskur. Hann hefði boðið henni áfengi og þau drukkið saman. Skömmu síðar hefði hún ákveðið að fara að sofa en ákærði þá falast eftir kynlífi. Hún hefði hafnað því en hann þá ýtt henni á rúmið, afklætt hana gegn vilja hennar og nauðgað henni,“ segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Sótti hnífinn þegar hún vildi hringja á lögreglu

Hann hafi svo farið í sturtu og hún viljað hringja á lögregluna. Hún sótti tvo hnífa úr eldhúsinu áður en hún talaði við Wenwei þar sem hún var hrædd við hann. Vildi hann ekki hringja á lögregluna. Þess í stað tók hann áðurnefndan flökunarhníf og byrjaði að skera sig. Sendi konan þá beiðni símleiðis til leigusalanna sem hringdu á lögregluna.

„Í skýrslu Neyðarmóttöku er merkt við að kynmök hafi átt sér stað um leggöng, að brotaþola hafi verið veitt munnmök, að káfað hafi verið á kynfærum, brjóstum og rassi hennar, auk þess sem fingur hafi verið settur inn í leggöng hennar,“ segir í dóminum. Konan var með mar á vinstra læri en engir aðrir áverkar voru skráðir. Andlega var hún sögð dofin og fjarræn en ekki sýnilega undir áhrifum áfengis eða annarra efna.

Var henni boðin sálfræðiaðstoð en hún sagðist myndu leita sér hennar í heimalandi sínu.

Þótti ekki trúverðugur

Wenwei neitaði sök í málinu. Hann sagði samræði hafa átt sér stað en að konan hefði haft frumkvæði af því. Gögn málsins, eins og upptaka úr símtali við Neyðarlínu rímuðu hins vegar við vitnisburð konunnar um að samþykki hafi ekki legið fyrir og þóttu skýringar Wenwei ótrúverðugar.

„Samkvæmt öllu framangreindu og heildstæðu mati á gögnum málsins þykir sannað, svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, að ákærði hafi án samþykkis haft samræði og önnur kynferðismök við brotaþola með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung eins og greinir í ákæru,“ segir í niðurstöðu dómsins.

Eins og áður segir hlýtur Wenwei tveggja og hálfs árs fangelsi. Þá þarf hann að greiða brotaþola 2 milljónir króna í bætur auk alls lögfræði og málskostnaðar.