Fréttir

Ólafur Ragnar sagði að EB aðild hefði upp á meira að bjóða en EES – „Það sé einfaldlega betra að fara á EB höfuðbólið og hafa eitthvað að segja“

Mynd
Ummæli Ólafs Ragnars hafa verið rifjuð upp á samfélagsmiðlum í dag.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti og einn af talsmönnum Áfram Ísland, sagði á sínum tíma að aðild að EB hefði upp á meira að bjóða en EES. Ummælin hafa verið rifjuð upp víða á samfélagsmiðlum í dag.

Í frétt Tímans frá 30. júní árið 1992 kom fram að Alþýðubandalagið, þá undir formennsku Ólafs Ragnars, hafnaði EES samningum. Sagði Ólafur Ragnar að aðild að EB (sem síðar varð ESB) hefði upp á meiri möguleika að bjóða.

Á miðstjórnarfundi flokksins var tillaga frá flokksstjórn og þingflokki samþykkt um að skilgreina EES samninginn sem „forsal“ að EB, aukaaðild að EB og forspil að fullri aðild.

Eins og flestir vita þá gerðist Ísland aðili að EES samningnum þann 1. janúar árið 1994 ásamt Noregi, Liktenstein en Sviss hafnaði samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hér á Íslandi fór ekki fram þjóðaratkvæðagreiðsla heldur var samningurinn samþykktur með atkvæðagreiðslu í þinginu. 33 þingmenn greiddu atkvæði með en 23 á móti og 6 sátu hjá.

Háborðið betra en hjáleigan

Ólafur Ragnar sagðist ekki lengur vera þeirrar skoðunar að hægt væri að draga línu á milli EES og EB og að til væri eitthvað hlið sem við þyrftum ekki að ganga í gegnum.

Mynd

„Því bendir hann á að vilji menn hafa áhrif á evrópska efnahagssvæðinu sé miklu betra að sitja við sjálft EB háborðið og telur þetta hafa ráðið miklu t.d. um afstöðu Svía,“ segir í frétt Tímans. „Það sé einfaldlega betra að fara á EB höfuðbólið og hafa eitthvað að segja, en vera áhrifalaus á EES hjáleigunni.“

Vildi tvíhliða samning

Tekið er fram að Alþýðubandalagið sé ekki að leggja til aðildarumsókn hjá EB. Frekar vilji flokkurinn sjá tvíhliða samninga Íslands við EB.

Sagði Alþýðubandalagið að áður en málið yrði afgreitt á Alþingi þá yrði að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það sem og að breyta þyrfti stjórnarskránni til að koma í veg fyrir stjórnarskrárbrot.

Ræðumaður í Sjálfstæðissalnum

Ólafur Ragnar var í gær ræðumaður samtakanna Áfram Íslands á stofnfundi í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. En samtökin berjast gegn því að Ísland hefji á nýj aðildarviðræður við Evrópusambandið.

„Þetta er þjóðaratkvæðagreiðsla og ég er nú enn þá hluti af þjóðinni. Enda hefur kannski enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég,“ sagði Ólafur Ragnar.