Fréttir

Megas er látinn

Mynd
Megas, Magnús Þór Jónsson. Mynd/Stefán

Tónlistarmaðurinn Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, er látinn 81 árs að aldri. Frá þessu greinir RÚV.

Megas fæddist í Reykjavík þann 7. apríl árið 1945. Foreldrar hans voru Þórunn Elfa Magnúsdóttir og Jón Þórðarson. Eftir að Megas lauk námi við Menntaskólann í Reykjavík hélt hann til Noregs þar sem hann nam þjóðháttafræði við Oslóarháskóla. Hann byrjaði snemma að fást við lagasmíðar og textagerð en teikning átti hug hans einnig. Hann átti síðar eftir að útskrifast frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands.

Talið er að helstu áhrifavaldar Megasar á æskuárunum hafi verið Halldór Laxness, Elvis Presley og síðar Bob Dylan sem Megas gerði meðal annars útvarpsþætti um.

Megas var afkastamikill tónlistarmaður, dægurlagahöfundur, rithöfundur og myndlistarmaður. Megas var tvímælalaust einn þekktasti tónlistarmaður þjóðarinnar allt frá því að hans fyrsta plata kom út árið 1972. Síðan hafa komið úr á fjórða tug platna. Meðal hans þekktustu laga eru til dæmis Spáðu í mig, Komdu og skoðaðu í kistuna mína, Tvær stjörnur, Fatlafól, Krókódílamaðurinn, Reykjavíkurnætur, Paradísarfuglinn, Ragnheiður biskupsdóttir og mörg önnur.

Eftirlifandi unnusta Megasar er Margrét H. Blöndal og hann lætur eins eftir sig þrjá syni.