Fréttir

Dæmdur nauðgari fær ekki endurupptöku: Dómur í sáðlátsmáli stendur

Mynd
Endurupptökudómur hefur aðsetur hjá Dómstólasýslunni, að Suðurlandsbraut 14, 3. hæð. Mynd: Já.is

Endurupptökudómur hefur það hlutverk að meta hvort dómsmál sem dæmt hefur verið í skulu tekin upp að nýju. Nýlega fjallaði Endurupptökudómur um beiðni Gareese Joshua Gray, dæmds nauðgara, um endurupptöku á máli hans. 

Háttsemi Gary fólst í því að setjast klofvega yfir 16 ára stúlku á heimili hennar á Norðurlandi, fróa sér og hafa sáðlát yfir andlit hennar þrátt fyrir að hún hafi sagt honum að hún vildi það ekki. 

Héraðsdómur mat háttsemina sem brot gegn blygðunarsemi en Landsréttur mat hana sem nauðgun og þyngdi dóminn úr 9 mánaða skilorðsbundnu fangelsi í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi. Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu. 

Taldi ný gögn hafa komið fram

Í endurupptökubeiðni byggði Gray á þremur meginrökum samkvæmt 228. gr. laga um meðferð sakamála. Í fyrsta lagi hélt hann því fram að ný gögn hefðu komið fram, einkum upplýsingar um farsíma brotaþola sem gæti varpað ljósi á áreiðanleika rafrænna samskiptagagna sem lögð voru fram við meðferð málsins. Hann taldi að tæknileg rannsókn á símanum gæti sýnt hvort skjáskot og skilaboð væru óbreytt og ófölsuð.

Í öðru lagi hélt hann því fram að sönnunarmat dómstólanna hefði verið rangt. Að hans mati hefði Landsréttur lagt of mikið vægi á skjáskot og skjáupptökur sem ekki hefðu verið tæknilega sannreynd. Hann taldi einnig að framburður brotaþola og vitna hefði verið ósamræmdur og að ekki hefði verið tekið nægilegt tillit til mögulegra hagsmuna eins vitnisins eða annarra skýringa á rafrænum samskiptum.

Í þriðja lagi byggði Gray á því að verulegir gallar hefðu verið á rannsókn lögreglu og málsmeðferð. Hann gagnrýndi meðal annars að farsímar aðila hefðu ekki verið rannsakaðir með fullnægjandi hætti, að vettvangur hefði ekki verið skoðaður, að ekki hefði verið aflað tiltekinna sjúkragagna og að rannsókn hefði ekki verið framkvæmd með nægjanlegri hlutlægni. Þá taldi hann að réttur hans til réttlátrar málsmeðferðar hefði verið skertur vegna takmarkaðs aðgangs að gögnum, mistaka við túlkaþjónustu og meintra annmarka á störfum verjanda og ákæruvalds.

Skilyrði fyrir endurupptöku ekki uppfyllt

Endurupptökudómur komst að þeirri niðurstöðu að skilyrði fyrir endurupptöku væru ekki uppfyllt. Dómurinn taldi að ekki hefðu komið fram ný gögn sem hefðu getað haft veruleg áhrif á niðurstöðu málsins. Þá voru ekki taldar leiddar verulegar líkur að því að sönnunargögn hefðu verið rangt metin eða að rannsókn og málsmeðferð hefðu verið haldnar slíkum annmörkum að réttlættu endurupptöku. Því var beiðni Gareese Joshua Gray um endurupptöku málsins hafnað og fyrri dómar stóðu óbreyttir.

Nánar má lesa um niðurstöðu Endurupptökudóms hér