Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál sem tengjast þremur kannabisræktunum sem voru stöðvaðar nýlega á mismunandi stöðum á suðvesturhorni landsins.
Nú þegar hafa farið fram átta húsleitir í tengslum við rannsóknina og hald hefur verið lagt á tæplega 800 kannabisplöntur, ásamt nokkru magni annarra fíkniefna, fjármuna og búnaðar til ræktunar. Samkvæmt tilkynningu lögreglu var um nokkuð stórar ræktanir að ræða og er það mat lögreglu að í öllum þremur tilvikum hafi kannabis verið ræktað til sölu og dreifingar. Átta hafa verið handtekin og yfirheyrð í þágu rannsóknar sem að sögn lögreglu miðar vel. Naut embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar frá kollegum sínum á Suðurnesjum og Suðurlandi við aðgerðir í málinu.
Samkvæmt tilkynningu verða ekki frekari upplýsingar veittar að svo stöddu en almenningi er þó bent á upplýsingasíma lögreglu, 800-5005, þar sem má hringja inn nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um.