Lögreglan á Suðurlandi hefur óskað eftir hjálp frá þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna rútuslyss í Suðursveit.
RÚV greindi frá.
Rútan valt. Tíu voru í rútunni og sex eru slasaðir samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
„Lögreglan hefur óskað eftir aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar. Björgunarsveitir á Suðurlandi eru í viðbragðsstöðu,“ segir í fréttinni.
Uppfært kl. 11:20:
Samkvæmt frétt mbl.is voru 13 farþegar í rútunni. Þar af eru sex slasaðir. Ekki er vitað hvaðan rútan var að koma né hvert hún var að fara.