Píratar töpuðu 11,9 milljónum króna kosningaárið 2024. Flokkurinn fékk enga veglega styrki frá einstaklingum eða lögaðilum á árinu.
Þetta kemur fram í ársreikningi flokksins fyrir árið 2024 sem Ríkisendurskoðun samþykkti nýverið.
Heimildin skoðaði ársreikningin og greindi frá.
Rekstartekjur Pírata voru 79,9 milljónir króna. Eigið fé í árslok 2024 var jákvætt um 2 milljónir kr. en var jákvætt 13,8 millj. kr. árið á undan. Einn starfsmaður var í fullu starfi og námu laun og launatengd gjöld flokksins 19,4 milljónum króna. Félagsgjöld einstaklinga námu tæpum 1,5 milljónum.
Sjá nánar á vef Heimildarinnar.