Fréttir

Kjartan varar við vondri vinnustaðamenningu: „Fæstir veikjast vegna eins fundar“

Mynd
Kjartan Örn Sigurðsson. Mynd: Facebook.

Kjartan Örn Sigurðsson, eigandi Ormsson hf, birtir áhugaverða grein um vonda vinnustaðamenningu í Morgunblaðinu í dag. 

Hann segir að vinnustaðamenning sé í raun lýðheilsumál vegna þess að afleiðingarnar endi á heimilum fólks og stöðvist raunar ekki þar: 

„Við lítum gjarnan á afleiðingar lélegrar vinnustaðamenningar sem vandamál fyrirtækisins. Minni afköst, meiri starfsmannavelta, verri þjónusta og lakari rekstrarniðurstaða. En endanlegur kostnaður við vonda vinnustaðamenningu endar ekki einu sinni hjá fyrirtækinu. Hann endar heima hjá fólki. Og kannski stoppar reikningurinn ekki bara þar. Þegar slík menning leiðir til streitu, kulnunar eða heilsubrests greiðir samfélagið með heilbrigðiskerfi, veikindaforföllum og minni atvinnuþátttöku. Kannski er vinnustaðamenning ekki bara rekstrarmál. Kannski er hún líka lýðheilsumál.“

Vandamálið snýst um miklu meira en vinnuálag og raunar þolir fólk frekar vinnuálag heldur en óvissu um hvaða leikreglur gilda og hvort sömu reglurnar gildi fyrir alla. Sanngirni skiptir mál. Kjartan bendir á að áhrifin af vondri vinnustaðamenningu séu uppsöfnuð: 

„Auðvitað er lífið flóknara en svo að hægt sé að rekja hvert einasta vandamál til vinnustaðarins. Enginn hefur sagt að sonurinn hafi fallið í stærðfræði vegna vinnustaðamenningar föður síns. Lífið er sjaldnast svo einfalt. En það þýðir ekki að vinnustaðamenning hafi engin áhrif. Rétt eins og enginn matur veldur offitu og engin ein svefnlaus nótt kulnun eru það uppsöfnuð áhrif sem skipta máli. Fæstir veikjast vegna eins fundar. Fæstir kulna vegna eins verkefnis eða erfiðs dags.

En hvað gerist þegar fólk býr við langvarandi óvissu, skort á trausti eða upplifun á ósanngirni? Þegar það veit aldrei hvort sömu reglur gilda fyrir alla eða upplifir að það hafi misst stjórn á eigin vinnuumhverfi? Þá er kannski ekki óeðlilegt að slíkt skilji eftir sig spor í streitu, svefni, orku og almennri líðan.“

Kjartan bendir á að velgengni fyrirtækisins snúist ekki bara um þær tölur og gögn sem finna má í ársreikningnum: 

„Þegar stjórnandi er spurður hvernig fyrirtækinu gangi ætti svarið kannski ekki aðeins að finnast í ársreikningnum heldur líka í líðan þess fólks sem vinnur þar.“