Fréttir

Hagar nýr bakhjarl Ungra frumkvöðla á Íslandi

Mynd
Anton Birkir Sigfússon, forstöðumaður sjálfbærni hjá Högum, Petra Bragadóttir, framkvæmdastjóri Ungra frumkvöðla á Íslandi, og Finnur Oddsson, forstjóri Haga.

Hagar hafa undirritað samstarfssamning við Unga frumkvöðla á Íslandi, félagasamtök sem hafa um árabil staðið að Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla. Með samstarfinu vilja Hagar styðja við frumkvöðlamenntun ungs fólks og efla tengsl nemenda við atvinnulífið, ekki síst á sviði smásölu og matvælaiðnaðar. 

Í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla stofna framhaldsskólanemendur og reka eigið fyrirtæki á 16 vikna námskeiði. Þar vinna þau með viðskiptahugmynd frá fyrstu skrefum yfir í vöru eða þjónustu, móta viðskiptaáætlun, fjármagna reksturinn, kynna verkefni sitt og fá leiðsögn frá aðilum úr atvinnulífinu. Verkefnið gefur nemendum dýrmæta reynslu af því að taka ákvarðanir, vinna í teymi og koma hugmynd í framkvæmd. 

Samstarf Haga við Unga frumkvöðla byggir á þeirri sýn að mikilvægt sé að styðja ungt fólk sem hefur áhuga á nýsköpun, viðskiptum og vöruþróun. Hagar munu styðja starfsemina með fjárframlagi auk þess sem stefnt er að því að starfsfólk félagsins komi að verkefninu með þekkingu og reynslu úr verslun, rekstri og matvælageiranum.

„Fyrirtækjasmiðjan er frábær vettvangur fyrir ungt fólk til að prófa eigin hugmyndir í raunverulegu umhverfi. Fyrirtækjasmiðjan gefur nemendum innsýn í það hvernig hugmynd verður að vöru eða þjónustu og hvaða skref þarf að taka til að koma henni á markað. Hjá Högum höfum við á undanförnum árum lagt sérstaka áherslu á að styðja við nýsköpun í matvælaframleiðslu, meðal annars í gegnum nýsköpunarsjóðinn Uppsprettuna. Samstarfið við Unga frumkvöðla á Íslandi fellur vel að þeirri áherslu og skapar tækifæri til að styðja við næstu kynslóð frumkvöðla sem vilja þróa nýjar vörur fyrir íslenskan markað,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga. 

150 fyrirtæki tóku þátt á síðustu vörumessu

Þátttaka í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár. Á árlegri vörumessu verkefnisins í Smáralind kynna nemendur afrakstur vinnunnar fyrir almenningi og dómnefnd, en þar má sjá fjölbreyttar hugmyndir, meðal ananrs á sviði matvæla, sjálfbærni, hönnunar, tækni og þjónustu. Á síðustu vörumessu tóku 150 fyrirtæki þátt sem stofnuð voru af um 650 nemendum úr 17 framhaldsskólum víðs vegar um landið.

„Það hefur verið mjög gefandi að fylgja þessu verkefni eftir og sjá það vaxa og dafna og festast í sessi í framhaldsskólum landsins. Nemendur eru mjög þakklátir fyrir þetta tækifæri og nefna oft að þetta sé einn lærdómsríkasti áfangi sem þau fara í gegn um í framhaldsskólanum, þar sem þau tileinka sér færni sem nýtist þeim til framtíðar og finna styrkleika sína. Þetta ætti að vera skylduáfangi í öllum framhaldsskólum. Ég er mjög þakklát fyrir bakhjarla verkefnisins sem eru leiðandi í sínum geirum og hjálpa til með ýmsum hætti. Samstarf við Haga mun gera nemendum kleift að koma vörum sínum í dreifingu í verslunum þeirra og líklegra að þau haldi áfram með fyrirtæki sín eftir að námi lýkur,” segir Petra Bragadóttir framkvæmdastjóri Ungra frumkvöðla á Íslandi.