Grímuklæddir nýnasistar marseruðu um Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, á þjóðhátíðardag landsins þann 4. júlí. Lögreglan fylgdist með en aðhafðist ekkert.
Mörgum brá í brún þegar hundruð meðlima nýnasistasamtakanna Patriot Front marseruðu um Washingtonborg á þjóðhátíðardag Bandaríkjanna þann 4. júlí.
Samtökin voru stofnuð árið 2017 og tala fyrir yfirburðum hvíta kynstofnsins, gegn innflytjendum, gegn réttindum hinsegin fólks og kvenna.
Mennirnir voru með hulin andlit, sólgleraugu, kakífötum og með derhúfur með merki nýnasistasamtakanna á. Þeir veifuðu ýmsum fánum svo sem þeim bandaríska, en sumir voru með hann á hvolfi.
Í myndböndum sem tekin voru af þeim mátti heyra þá kalla „Líf, fresli, sigur!“ og „Tökum Ameríku til baka!“ þar sem þeir gengu frá Union Station brautarstöðinni að þinghúsinu.
Eins og segir í frétt miðilsins The Hill um málið þá fylgdist miðborgarlögreglan í Washington (MPD) með göngu nýnasistanna en aðhafðist ekkert. Eitthvað var um mótmæli gegn Patriot Front.