Héraðsdómur Vestfjarða hefur sakfellt sjómann fyrir að skjóta úr haglabyssu á dróna Fiskistofu sem notaður var til eftirlits með veiðum. Taldi dómurinn að sjómaðurinn hafi með þessu reynt að hindra veiðieftirlitið.
Þetta kemur fram á vef Fiskistofu en dómurinn hefur ekki verið birtur á vef héraðsdómstólanna og í tilkynningu Fiskistofu er ekkert minnst á hver málsvörn sjómannsins var eða hvort hann játaði brot sín.
Í tilkynningu Fiskistofu segir að atvikið hafi átt sér stað í nóvember 2024 þegar dróninn var notaður við eftirlit með veiðum báts þar sem viðkomandi sjómaður var um borð.
Segir að dómurinn hafi talað sannað að sjómaðurinn hefði vitað eða mátt vita að hann væri að skjóta á dróna Fiskistofu. Að mati dómsins hafi tilgangurinn verið að hindra eftirlit með veiðum bátsins.
Sjómaðurinn hafi verið sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og brot á vopnalögum þar sem hann hefði ekki verið með gilt skotvopnaleyfi. Refsingin hafi verið sekt til ríkissjóðs og skotvopnið gert upptækt.
Fordæmi
Fiskistofa segir að niðurstaða Héraðsdóms Vestfjarða staðfesti að aðgerðir sem miði að því að hindra eða spilla lögmætu eftirliti stjórnvalda séu refsiverðar. Þá undirstriki dómurinn að notkun nýrrar tækni, svo sem dróna við veiðieftirlit, njóti sömu verndar og hefðbundnar eftirlitsaðferðir.
Telur Fiskistofa að með dómnum séu send skýr skilaboð um að árásir á eða íhlutun gagnvart eftirlitsbúnaði stjórnvalda verði ekki liðin. Telur stofnunin jafnfram að málið hafi fordæmisgildi fyrir framkvæmd veiðieftirlits og styrki heimildir Fiskistofu til að nýta tækninýjungar við eftirlitsstörf. Dómurinn styðji þannig við markmið um að tryggja að farið sé að reglum um sjálfbærar og lögmætar veiðar.
Jafnframt sé niðurstaðan til þess fallin að auka öryggi eftirlitsmanna við störf sín og efla traust á eftirlitskerfinu í heild.