Fréttir

Fannst látinn í Biskupstungum

Mynd

Karlmaður á áttræðisaldri fannst látinn í tjaldi í Biskupstungum á Suðurlandi í gær. Kona sem var með honum í tjaldinu var flutt þungt haldin á gjörgæsludeild.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Í tilkynningunni segir að um hádegisbil í gær hafi lögreglu borist tilkynning um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum. Lögregla og sjúkralið hafi þegar verið send á vettvang.

Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir hafi karlmaður á áttræðisaldri verið úrskurðaður látinn á vettvangi. Kona á sjötugsaldri hafi verið flutt á gjörgæsludeild þungt haldin.

Segir að lokum í tilkynningunni að lögreglan á Suðurlandi fari með rannsókn málsins. Málið sé rannsakað sem slys og sé meðal annars til skoðunar hvort um gaseitrun hafi verið að ræða.