Fréttir

Móðir grunuð um að myrða börn sín tvö – Kenndi bóluefnum um

Mynd
Shaw gæti endað fyrir aftökusveit. Mynd/Sýslumaðurinn í Ada sýslu

Móðir í Bandaríkjunum hefur verið ákærð fyrir að myrða börnin sín tvö. Móðirin hafði áður kennt bóluefnum um dauða þeirra.

Tímaritið People greinir frá þessu.

Móðirin, hin 23 ára Andrea Shaw frá bænum Payette í Idaho fylki í norðvesturhluta Bandaríkjanna, hefur verið ákærð fyrir tvöfalt morð af yfirlögðu ráði. Það er á börnunum sínum, 18 mánaða tvíburum sem fundust látnir í rúminu sínu þann 1. maí árið 2025.

Mættu í andbólusetningarhlaðvarp

Nokkrum dögum eftir að tvíburarnir fundust látnir mættu móðirin og eiginmaður hennar í hlaðvarp hjá samtökunum Children´s Health Defence. En það eru samtök sem Robert F. Kennedy Jr. núverandi heilbrigðisráðherra stofnaði til þess að berjast gegn bólusetningum.

Í hlaðvarpinu sagði Shaw að tvíburarnir hefðu fengið þrjár bólusetningar. Þeir hefðu veikst í kjölfarið og dáið.

Málið hefur verið lengi í rannsókn hjá lögreglunni, meira en eitt ár. Í júní var Andrea loks handtekin í borginni Boisie og ákærð fyrir morð á börnunum sínum tveimur. Lögreglan hefur ekki enn þá greint frá því hvað hún telur hafa dregið börnin til dauða en móðirin er ákærð fyrir morð af yfirlögðu ráði. Lögregla hefur allt frá upphafi haldið því fram að um sakamálarannsókn sé að ræða.

Stendur föst á sínu

Andrea situr hins vegar föst við sinn keip. Lögmaður hennar hefur þegar rætt við fjölmiðla um málið.

„Þeir voru að rannsaka þetta sem bóluefnadauða og það er enn þá það sem þeir halda að þetta sé,“ sagði Joe Filicetti, verjandi móðurinnar. Útlistaði hann þetta hins vegar ekkert nánar en greindi frá því að Andrea Shaw hefði nýlega eignast annað barn.

Gæti endað fyrir aftökusveit

Dómari hefur ákveðið að trygging Andreu séu 2 milljónir dollara, eða 2,5 milljarðar íslenskra króna.

Verði hún fundin sek gæti hún átt lífstíðarfangelsi yfir höfði sér eða jafn vel fengið dauðarefsinguna sem er við lýði í Idaho fylki. Helsta aðferð Idaho til þess að taka dauðadæmda fanga af lífi er með aftökusveit.