Fréttir

Minkadrápsmálið: Náttúruverndarstofnun herjaði á Árna Loga eftir viðtal við hann í Mogganum

Mynd
Árni Logi Sigurbjörnsson

„Ég er búinn að taka fimm minka við skrúðgarðinn og við tjarnirnar suður við Kaldbak. Það er silungur í tjörnunum og mikið fuglalíf og þar er mikið af mink.“ – Þessi orð Árna Loga Sigurbjörnssonar, meindýraeyðis í Víðihlíð í Öxarfirði, sem féllu í viðtali við Morgunblaðið þann 4. apríl árið 2024, leiddu til þess að hann var ákærður og loks dæmdur fyrir brot gegn lögum um vernd og friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. 

Náttúruverndarstofnun, sem á þessum tíma hét Umhverfisstofnun, kærði Árna Loga til lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og lögreglustjórinn ákærði síðan. 

Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir Árna sem kveðinn var upp 24. júní en hefur ekki verið birtur. 

Brot Árna fólst í því að hafa beitt svokölluðum lífgildrum við föngun minka sem hann síðan aflífaði eftir að þeir voru komnir í búrið. Árni segist sjálfur hafa flutt inn slíkar gildrur frá árinu 1979 og aldrei fengið athugasemdir við notkun þeirra enda sé um mannúðlega föngun að ræða því dýrin sakar ekki í búrinu. Breyting var hins vegar gerð á lögunum árið 1994 sem felur í sér að notkun þessara gildra er óleyfileg. Erfitt er fyrir leikmann að sjá þessu stað við lestur tilvísaðra lagagreina en orðið „lífgildrur“ kemur þar hvergi fyrir. 

Sjá einnig: Meindýraeyðirinn Árni Logi sakfelldur fyrir minkadráp

Þó liggur fyrir að aðeins má við veiðar villtra dýra notast við búnað sem hlotið hefur samþykki Náttúruverndarstofnunar. Stofnunin viðurkennir ekki lífgildrur sem veiðibúnað vegna hættunnar á því að ekki sé vitjað um dýrin. Þar sem Árni sótti ekki um undanþágu til notkunar á þessum gildrum er hann talinn brotlegur við lögin. 

Árni krafðist frávísunar málsins vegna óskýrleika í ákæru og í viðkomandi lögum. Dómari taldi orðalag í viðkomandi lagabókstaf vera nægilega skýrt og að ákæran væri ekki haldin þeim annmörkum að vísa bæri málinu frá. 

Sagður hafa tekið sér verk sem aðrir réðu ekki við

Leidd voru fram nokkur vitni fyrir dómi og sagði einn aðili að Árni hefði tekið að sér að leysa verkefni sem aðrir hafi ekki ráðið við. Hann kannaðist við að Árni hefði notað lífgildrur við að ná rottum og músum, gildrurnar hafi verið þannig að þær hafi farið inn, þar hafi verið eitur, og þær svo farið út og drepist þar. 

Annað vitni sagðist hafa verið í samskiptum við Árna í áratugi. Sagði hann lífgildrur vera notaðar til að ná gæludýrum þannig að þau náist án þess að meiðast. Það þurfi að vaka yfir gildrunum og þeim sé lokað um nætur. 

Meindýraeyðir, sem bar vitni, sagðist hafa verið verkstjóri hjá Reykjavíkurborg í rúmlega 30 ár. Lífgildrur hafi verið í notkun hjá borginni þegar hann byrjaði og verið allan þann tíma sem hann starfaði þar, til að veiða minka og ketti. Hann kvaðst aldrei hafa heyrt að sækja þyrfti um undanþágur fyrir notkun þeirra. Hann telji þetta notað víða og sé selt í verslunum. 

Ekki tekið mark á röksemdum Árna

Árni bar fyrir sig að notkun lífgildra hafi verið látin átölulaus af stjórnvöldum alla tíð og þær séu seldar í verslunum. Hann hafi verið í góðri trú og ekki haft tilefni tli að ætla að hann þyrfti sérstakt leyfi til að nota gildrurna. Þá sagði hann þetta vera mun öruggari og mannúðlegri aðferð en notkun þeirra gildra sem leyfðar eru, en dæmi um leyfðar gildrur eru fótbogar. 

Dómurinn taldi hins vegar það vera á ábyrgð Árna sjálfs að fylgjast með lagabreytingum sem snerta fag hans. Ennfremur séu ákvæði laga skýr um það að ekki megi nota aðrar gildrur til minkaveiða en þær sem hlotið hafa samþykki Náttúruverndarstofnunar. 

Taldist hafa rofið skilorð

Árni var dæmdur í Landsrétti haustið 2023 fyrir vopnalagabrot en brotið fólst í því að hafa geymt skotvopn á heimili sínu ekki í læstum hirslum. Var hann dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Með áðurnefndum minkaveiðum sem Árni Logi spjallaði um við Morgunblaðið taldist hann hafa rofið skilorð.

Refsingin í þessu máli er 50 þúsund króna sekt sem greiðist innan fjögurra vikna frá uppsögu dómsins en ella skal Árni sitja í fjögurra daga fangelsi.