Fjölmiðlamanninum Agli Helgasyni ofbýður útbreiðsla lúpínunnar í grennd við höfuðborgarsvæðið. Segir hann hin smágerðu íslensku sumarblóm þurfi að víkja fyrir lúpínunni.
„Ég hef farið nokkrum sinnum á útjaðar höfuðborgarsvæðisins síðustu tvær vikurnar, segi eins og er - mér ofbýður gjörsamlega útbreiðsla lúpínunnar,“ segir Egill í færslu á samfélagsmiðlum.
Þeir sem fylgjast með náttúruverndarmálum á Íslandi vita að lúpínan, sem upprunalega kemur frá Alaska, er ein umdeildasta jurt sem hér stingur niður rótum. Sumir segja hana bjargvætt, sem hafi bundið saman landið og hindrað landfok. Aðrir segja hana ágenga útlenda jurt sem kæfi aðrar plöntur.
„Þessi ágenga jurt leggur undir sig sífellt meira svæði í móa, á mel og kjarrlendi,“ segir Egill. „Hinn smágerði íslenski sumarblómi, smávirnirnir fögru, þarf að víkja - vinkona mín stakk upp á því að stofnaði yrði Smávinavinafélagið.“
Segir Egill að víða sé lúpínunnar engin þörf því að gróðurinn hafi verið í ágætu ásigkomulagi fyrir. Það megi hins vegar réttlæta gróðursetningu lúpínu á örfoka landi.
Bendir hann á að miklar takmarkanir séu á útbreiðslu lúpínu í nágrannalöndunum, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Sums staðar sé hún einfaldlega bönnuð.