Drangar hafa gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Brauð & Co., einu þekktasta handverksbakaríi landsins.
Brauð & Co. rekur átta útsölustaði á höfuðborgarsvæðinu og er ársvelta félagsins rúmlega 1,5 milljarður króna. Félagið skilaði hagnaði á rekstrarárinu 2025 og hefur byggt upp sterka markaðsstöðu með áherslu á framúrskarandi gæði, handverk og einstaka upplifun viðskiptavina. Kaupverðið verður greitt með hlutabréfum í Dröngum og reiðufé eins og segir í fréttatilkynningu.
Frá stofnun hefur Brauð & Co. skapað sér sérstöðu á íslenskum markaði með súrdeigsbrauði, fersku bakkelsi og metnaðarfullri vöruþróun. Vörumerkið nýtur mikillar virðingar meðal neytenda og hefur orðið eitt sterkasta vörumerki landsins á sínu sviði.
„Við erum afar ánægð með þessi kaup. Brauð & Co. hefur byggt upp einstakt vörumerki og við ætlum að halda áfram á sömu braut, þar sem gæði vörunnar verða áfram höfð að leiðarljósi og hvergi slakað á þeim kröfum sem félagið er þekkt fyrir. Við þekkjum félagið vel í gegnum stjórnarsetu og höfum því fengið tækifæri til að kynnast bæði rekstrinum og því öfluga teymi sem hefur byggt fyrirtækið upp. Teymið hjá Brauð & Co samanstendur af sterkum og metnaðarfullum einstaklingum sem munu leiða félagið áfram. Við hlökkum til að styðja við þeirra vegferð og byggja áfram á þeim sterka grunni sem þegar hefur verið lagður. Jafnframt sjáum við veruleg vaxtartækifæri og stefnum að því að fjölga staðsetningum á næstu misserum, meðal annars við Nettó-verslanir sem eru í eigu Dranga,“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga.
Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Drangar eru eitt stærsta verslunar- og þjónustufyrirtæki landsins og í eigu þess eru meðal annars matvöruverslanirnar Nettó, SPAR, Prís, Krambúðin, Kjörbúðin og 10–11. Með kaupunum styrkja Drangar enn frekar stöðu sína á matvörumarkaði og skapa ný tækifæri til bættrar þjónustu og vaxtar með samþættingu öflugra neytendavörumerkja.