Fréttir

Byko braut lög

Mynd
Lukkuhjól Byko á síðasta ári átti eftir að draga dilk á eftir sér.

Neytendastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að byggingarvöruverslanakeðjan Byko hafi brotið lög með svokölluðu lukkuhjóli.

Um var að ræða leik sem stóð yfir á síðasta ári.

Segir í ákvörðun Neytendastofu að samkvæmt skilmálum leiksins hafi allir sem voru 16 ára eða eldri getað tekið þátt og snúið svokölluðu lukkuhjóli einu sinni á dag til og með 30. nóvember 2025. Samkvæmt lukkuhjólinu hafi þátttakendur getað lent á átta reitum og af þeim hafi þrír reitir verið með engum vinningi, einn reitur með 2.500 króna gjafabréfi, einn með 5.000 króna gjafabréfi, einn með Mocca-Master kaffivél, einn með Einhell borvél og einn með Bosch jóladagatali. Samkvæmt upplýsingum Neytendastofu hafi litið út fyrir að ekki hafi eiginlegir vinningar verið í boði við snúning hjólsins heldur hafi átt að draga út nokkra vinningshafa af handahófi meðan leikurinn var í gangi.

Taldi Neytendastofa þetta mögulega brjóta í bága við lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu og reglugerð um viðskiptahætti sem teljist undir öllum kringumstæðum óréttmætir.

Ekkert að þessu

Byko andmælti því eindregið og sagði í sínum andsvörum meðal annars að um hefði verið að ræða leik sem hafi farið fram á tímabilinu 1. – 30. nóvember 2025 og verið framkvæmdur með skýrum hætti og á jafnræðisgrundvelli. 

Hver þátttakandi hafi getað tekið þátt einu sinni á dag og annað hvort hlotið vinning eða ekki. Alls hafi verið ellefu vinningar í boði á tímabilinu. Val vinningshafa hafi alfarið verið í höndum Playable-kerfisins, sem sé sérhæft stafrænt kerfi fyrir netleiki og slíkar úthlutanir. Val á vinningshöfum hafi farið fram með reiknialgrími kerfisins og hafi mannleg íhlutun þar hvergi komið nærri.

Þeir einstaklingar sem hlutu vinning hafi fengið sendan tölvupóst með nánari upplýsingum um afhendingu vinninga. Það væri fullvíst að allir vinningar hafi verið afhentir vinningshöfum og byggi Byko yfir fullnægjandi upplýsingum um þá aðila. Taldi Byko engar forsendur vera fyrir ásökunum Neytendastofu. 

Neytendastofa svaraði andmælum Byko meðal annars með því að vísa til þess að samkvæmt samfélagsmiðlasíðu Byko hafi leikurinn væri stilltur þannig að nokkrir heppnir vinningshafar væru dregnir út af handahófi einhvern tímann í nóvember meðan leikurinn væri í gangi. Neytendastofa vildi meina að slík útfærsla á vali á vinningshöfum virtist ekki samræmast skilmálum leiksins né hvernig útfærslu hans var háttað á vefsíðu félagsins. Taldi Neytendastofa að þessi framsetning hefði skapað óraunhæfar væntingar þátttakenda um vinningslíkur.

Byko viðurkenndi að samspil sjónrænnar framsetningar leiksins og raunverulegrar virkni Playable-kerfisins hefði getað verið skýrara. Fyrirtækið hafnaði því hins vegar alfarið að það hefði vísvitandi villt um fyrir þátttakendum í leiknum og vísaði því enn fremur á bug að hafa veitt rangar upplýsingar um virkni lukkuhjólsins. Færði Byko margvísleg rök fyrir því að fyrirtækið hefði ekki brotið gegn þeim lögum og þeirri reglugerð sem Neytendastofa vísaði til.

Lögbrot

Mótbárur Byko dugðu hins vegar ekki til að sannfæra Neytendastofu sem segir í sinni niðurstöðu að í skilmálum leiksins eða auglýsingum hefði ekkert komið fram um það að vinningar yrðu valdir með slembivali. Þá hafi ekki verið upplýst um fjölda vinninga, hvenær vinningar yrðu dregnir út eða á annan hátt fjallað um virkni leiksins en til þess væri að líta að á samfélagsmiðlareikningi félagsins hafi verið upplýst um að leikurinn væri stilltur þannig að nokkrir vinningshafar yrðu dregnir af handahófi einhvern tímann í nóvember meðan leikurinn væri í gangi. Ekki væri hægt að ætlast til að sú takmarkaða upplýsingagjöf hafi náð til allra þátttakenda leiksins.

Vildi Neytendastofa einnig meina að auglýsingar Byko vegna lukkuhjólsins hefðu ekki verið í samræmi við að aðeins 11 vinningar hefðu verið í boði.

Þá hafi í svörum Byko komið fram að vinningar hafi verið dregnir út með slembivali og að þegar þátttakandi hafi snúið hjólinu hafi hann annað hvort fengið vinning eða ekki. Það síðarnefnda væri í mótsögn við það sem upplýst hafi verið um á samfélagsmiðlareikningi félagsins þar sem staðhæft hafi verið að leikurinn væri stilltur þannig að vinningshafar yrðu dregnir út af handahófi meðan leikurinn væri í gangi. Óháð því þá væri það álit Neytendastofu, byggt á heildarmati á framsetningu lukkuhjólsins og upplýsingagjöf þar um, að tilhögun leiksins hafi verið villandi gagnvart neytendum enda hafi framsetning og kynning leiksins ekki farið saman við raunverulega virkni hans. 

Niðurstaða Neytendastofu er því sú að framsetning lukkuhjóls Byko hafi verið villandi gagnvart neytendum og að skortur á upplýsingum um virkni lukkuhjólsins og tilhögun útdrátta vinninga hafi verið villandi og ósanngjarn gagnvart neytendum. Telur Neytendastofa að Byko hafi með umræddum viðskiptaháttum brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. 

Ákvörðun Neytendastofu í heild sinni er hægt að nálgast hér.