Sveinn Andri Sveinsson lögmaður og verjandi Sindra Snæs Birgissonar telur ólíklegt að hryðjuverkamálinu svokallaða verði áfrýjað til Hæstaréttar, hann gefur skýrslum Europol falleinkunn og segir þær þvætting. Sveinn Andri ræddi um málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Sindri Snær hlaut 18 mánaða fangelsisdóm fyrir stórfelld vopnalagabrot í Landsrétti, þá Ísidór Nathansson 15 mánaða dóm fyrir sama brot. Ef þeir hefðu verið sakfelldir fyrir að undirbúa hryðjuverkaárás hefðu þeir átt von á mun lengri dómi.
Sjá frétt: Sindri í 18 mánaða fangelsi og Ísidór í 15 mánaða
„Það sem þetta snerist um var hvort það var tilraun til staðar, það er ljóst að tilraunir geta verið mismunandi – það getur verið framkvæmdarathöfn eins og ef þú ert með baseballkylfu og reynir að slá til manns en tekst það ekki,“ sagði Sveinn Andri. „Hins vegar er það undirbúningsathöfn – þú ferð út í búð og kaupir þér baseballkylfu, er það undirbúningsathöfn?“
Málatilbúnaður saksóknara byggðist á röðum undirbúningsathafna í samkrulli við leit á netinu og orðfærði. „Samanlagt þá hafi þarna verið hryðjuverkaundirbúningur. Bæði héraðsdómur og Landsréttur í tvígang höfnuðu þessu. Töldu að þessi sönnun hefði ekki tekist.“
Reyndi bara á „pjúra sönnun“
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, sem var yfirlögregluþjónn þegar málið var til rannsóknar sagði við Morgunblaðið nýverið að dómurinn gæfi til kynna að endurskoða þyrfti hryðjuverkalögin.
Sveinn Andri segir að ekkert hafi reynt á lögin í þessu máli. „Það reynir ekkert á það hvort hryðjuverkaákvæði hegningarlaga sé fullnægjandi refsiheimild, sé skýrt og hafi reynt á eitthvað, það var ekki. Það bara reyndi í sönnun, pjúra sönnun.“
Taldi að lögreglan hafði 100% komið í veg fyrir hryðjuverk
Fulltrúi frá Europol bar vitni fyrir dómi, hann gaf ekki upp nafn af öryggisástæðum, en fulltrúinn er deildarstjóri deildar innan Europol sem rannsakar öfga-hægrihryðjuverkastarfsemi. Hann skrifaði tvær skýrslur um málið sem íslenska lögreglan studdist við. Fjallað var um vitnisburðinn á Mbl á sínum tíma. Niðurstaða skýrslnanna tveggja var að íslenska lögreglan hafi 100% örugglega komið í veg fyrir hryðjuverk miðað við þau sönnunargögn sem Europol hafði undir höndum. Fulltrúinn sagðist fyrir dómi standa algjörlega við þá niðurstöðu.
„Væri ég núna forstöðumaður Europol þá myndi ég hafa verulegar áhyggjur. Skýrslan var fullkomið apaspil. Fullkomin markleysa. Þeir drógu þá ályktun að það væri einhver hryðjuverkasella, af því að uppi í Mosfellsbæ væri einhver klúbbur þar sem þeir kæmu saman. Og sá sem átti það húsnæði, ég er ekki að nefna nein nöfn, maðurinn sem ætti það húsnæði væri augljóslega maðurinn á bakvið þetta hryðjuverk. „Já hann bókaði far til Spánar – aðra leiðina. Aha! Það var sönnunin.“ Maðurinn býr á Spáni. Þá bóka menn aðra leiðina. Þetta var þessi skarpa skýrsla sem reyndist vera algjör þvættingur. Ég myndi hafa verulegar áhyggjur af þeirri stofnun og set veruleg spurningamerki við það pródúkt sem kemur frá þeim,“ sagði Sveinn Andri og bætti við eftir að þáttastjórnandi minnti hann á ummæli fulltrúans: „Algjör apaköttur.“
Kæmi á óvart af málið fari aftur fyrir Hæstarétt
Ekki hefur verið tekin ákvörðun af hálfu ríkissaksóknara hvort sótt verði um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Málið hefur áður komið við sögu Hæstaréttar og var þá sýknudómur Landsréttar ómerktur, Sveinn Andri telur ólíklegt að Hæstiréttur vilji taka málið aftur fyrir. „Þegar ríkissaksóknari fékk áfrýjunarleyfi síðast, Hæstiréttur samþykkti það og það sem gerist síðan er að Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar á þeirri forsendu að það þyrfti að rökstyðja frekar, taka fyrir í dómsorðum þetta atriði og þetta atriði. Allt saman listað upp í ítarlegum dómi Hæstaréttar hvað vantaði upp á að rökstyðja,“ sagði Sveinn Andri.
„Fyrir Landsrétti er þetta þannig að Hæstiréttur hefur lokaorðið. Þeir verða bara að fara eftir því sem vitringarnir við Lindargötu segja. Þá fer Landsréttur bara yfir þessa punkta systematískt og skilar dómi þar sem farið er yfir öll atriðin sem Hæstiréttur komst að. Það kæmi mér gríðarlega á óvart ef ríkissaksóknari ætli að fara aftur af stað eftir að Landsréttur er búinn að afgreiða þessar athugasemdir. Enn meira myndi það koma mér á óvart ef Hæstiréttur samþykkti slíkt áfrýjunarleyfi.“ Eftir standi ekkert nema endurmat á munnlegum framburði. „Það má Hæstiréttur er ekki gera. Hæstiréttur getur ekki endurskoðað mat Landsréttar á munnlegum framburði, þar stoppar lögsaga Hæstaréttar.“