Varðskipið Þór fylgir nú skipinu Bandero eftir í kjölfar hótana hvalaaðgerðasinnans Paul Watson. Bandero er á vegum Captain Paul Watson Foundation og er nú inni í íslenskri lögsögu undir því yfirlýsta markmiði að stöðva hvalveiðar Íslendinga. Um borð í Þór eru meðlimir sérsveitar Ríkislögreglustjóra.
Aðgerðir Watson eru gerðar undir nafninu Operation 86 sem vísar til þess þegar Watson stóð fyrir því að sökkva hvalveiðiskipum í Reykjavíkurhöfn.
Watson svarar
Watson hefur fengið margar kaldar kveðjur, fyrir helgi svaraði hann oddvita Miðflokksins í Mosfellsbæ sem hafði sent honum pillu á samfélagsmiðlum.
Sjá frétt: Watson svarar Sveini og frétt DV – „Þessi gamli maður er samt yngri en Kristján Loftsson“
„Þessi gamli maður er samt yngri en Kristján Loftsson og leiðir enn baráttu til verndunar lífi og fjölbreytni í hafinu. Loftsson er að hagnýta sér á ólöglegan hátt auðlindir sjávar. Ég hef tekist á við miklu stærri og öflugri ríki en Ísland, t.d. Japan, Noreg, Spán og Sovétríkin sálugu. Ég berst gegn öllum hvalveiðum, án þess að mismuna, þar á meðal gegn Bandaríkjunum og Kanada,“ segir Watson í skilaboðum til DV.
„Og já, ég vil fjölmiðlaathygli. Við búum í hnattrænu fjölmiðlaumhverfi og myndavélin er áhrifamesta vopnið á jörðinni. Það er mikilvægt að rannsaka og afhjúpa ólöglega starfsemi sem ógnar tegundum í útrýmingarhættu og ógnar vistkerfinu. Hvað vekur athygli fjölmiðla? Svarið er ágreiningur og þetta sumar verður hlaðið ágreiningi.“
Kaldar kveðjur
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill ekki fá Watson til landsins: „Þessum manni á auðvitað að meina að koma inn í landið eins og öðrum glæpamönnum. Eini tilgangur leiðangurs hans hingað til lands er andstæður lögum og guð má vita hvað hann ætlar sér. Ekki viljum við sjá hluti aftur eins og gerðist árið 1986.“
Köldustu kveðjurnar koma án efa frá Guðmundi Franklín Jónssyni, fyrrum forsetaframbjóðanda, sem segir einfaldlega: „Það ætti að kjöldraga þennan hryðjuverkamann!“
Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtakanna sagði í samtali við RÚV um helgina það vera ógeðfellt að kenna aðgerðirnar við skemmdarverk, aðgerðirnar 1986 hafi valdið miklum skaða á Íslandi.
Ráðherrann fyrrverandi Björn Bjarnason hnýtir í Watson og ríkisstjórnina í leiðinni: „Heimsfrægur ofbeldismaður boðar komu sína á Íslandsmið til að brjóta gegn fullveldisrétti þjóðarinnar og vinna tjón á atvinnutækjum við lögmæt störf auk þess að stefna mannslífum í hættu,“ segir Björn á Facebook. „Atvinnuvegaráðherra tekur í raun afstöðu með honum í samtali við ríkisútvarpið sem hallast á sveif með ráðherranum. Dómsmálaráðherra þegir en landhelgisgæslan segist við öllu búin – nýtur hún pólitísks stuðnings stjórnvalda til að verja fullveldið á hafinu?“
Hannes Hólmsteinn tekur undir með honum: „Íslendingar geta ekki látið þetta yfir sig ganga.“
Fótur og fit þegar fréttist af útlenskum mótorhjólagengjum
Þá segir Björn Ingi Hrafnsson á X: „Þegar fréttist af útlenskum mótorhjólagengjum verður uppi fótur og fit í Leifsstöð og viðkomandi snúið rakleiðis aftur heim. Varla ætla íslensk stjórnvöld að sýna þessum vitleysingi aðrar og betri viðtökur.“
Systir hans, kvikmyndaframleiðandinn Margrét Hrafnsdóttir, tekur í svipaðan streng og rifjar upp atburðina 1986:
„Ég held að Íslendingar séu svo kurteisir að þeir hafi ekki trúað sínum eigin augum yfir slíkum skemmdarverkum og eftir að hafa áttað sig á framferði þessa manns sem virðir lög og reglur að vettugi, vilja þeir eðlilega vera við öllu búnir,“ segir Margrét í færslu á Facebook. „Nú segja skoðanakannanir að margir Íslendingar séu á móti hvalveiðum en ég þori að fullyrða að flestir Íslendingar, kæri sig ekki um yfirgang, dónaskap, frekju og lítilsvirðingu Paul og félaga í garð Landhelgisgæslunnar hvað þá eignaspjöll. Ef málstaðurinn er ekki sterkari en þetta, hvað liggur þá að baki? Samtökin raka saman fjármunum með þessum aðferðum sínum sem minna helst á spennumyndir þar sem aðalsöguhetjan er eins og löggurnar sem eru sjálfar farnar að stunda glæpi.“
Telur hún að Watson geti gert aðra hluti fyrir sína peninga en þetta. „Er virkilega ekki hægt að fræða fólk um hvali, hvalveiðar og verndun hvalastofna á annan hátt með öllu þessu fjármagni sem þeir safna saman?“