Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skorar á ríkissaksóknara að endurskoða öll mál á sex og hálfs árs tímabili þar sem ökumaður taldist óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja í ljósi nýfallins dóms Landsréttar. Þetta segir Vilhjálmur í grein sem hann skrifar á Vísi.
Í dómnum var maður sýknaður af ákæru um að hafa brotið umferðarlög vegna aksturs undir áhrifum lyfja. Hann hafði fengið óxýkódon uppskrifað hjá lækni og mat Rannsóknarstofa Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði að hann væri óhæfur til að stjórna ökutæki. Maðurinn var sakfelldur í Héraðsdómi Norðurlands eystra en svo sýknaður í Landsrétti. Ástæða sýknunnar var umferðarlög þar sem segir:
„Ráðherra er heimilt að kveða á um vanhæfismörk með nánari hætti í reglugerð, þ.e. hvenær ökumaður teljist vera óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja.“
Umferðarlög tóku gildi í ársbyrjun 2020 og segir Vilhjálmur að frá þeim tíma hafi enginn ráðherra tilgreint í reglugerð hvar vanhæfismörkin liggja, það er að segja hvenær ökumaður teljist óhæfur til að stjórna ökutæki. Því telur Vilhjálmur að endurskoða verði öll slík mál frá 1. janúar 2020, hvort sem þeim lauk með lögreglusátt eða dómi.