„Elsku þjóð, hvar á Kaffistofa Samhjálpar að vera? Hvar á skjólshús að vera? Hvað með Konukot? Alltaf rís upp fólk sem telur að vissulega eigi starfsemin rétt á sér en það sé algjört glapræði að koma henni fyrir þar sem fyrirhugað er að koma henni fyrir. Gott úrræði en alls ekki hér.“ Svona hefst ákall Gríms Atlasonar, framkvæmdastjóra Geðhjálpar, eftir að byggingarleyfi kaffistofu Samhjálpar á Grensásvegi var afturkallað.
Íbúar í hverfinu hafa mótmælt þessum áformum allt frá því að greint var frá þeim, upphaflega stóð til að opna kaffistofuna í desember síðastliðnum en það tafðist.
Það hafa þó sumir íbúar fagnað áformunum.
Tugmilljóna tjón
Undirbúningurinn fyrir opnuninni á Grensásvegi var á lokametrunum og segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, í samtali við RÚV að tjón samtakanna hlaupi á tugum milljóna.
„Svo erum við líka búin að leigja húsnæðið í níu mánuði án þess að geta nýtt það. Þetta er mikið fjárhagslegt tjón og er bara áfall. Við vissum að sjálfsögðu af þessum kærum en við höfum líka fullgilt byggingarleyfi sem er þá fellt úr gildi frá og með gærdeginum.“
Starfsemin verður áfram í Fíladelfíu. Hafa þónokkrir fagnað niðurstöðunni á samfélagsmiðlum og telja þeir að þessi starfsemi, fyrir heimilislausa og fólk í virkri neyslu, eigi ekki heima í íbúðahverfi.
Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, sagði í Reykjavík síðdegis í gær að niðurstaðan sýndi að vinna hefði málið betur, meðal annars hafi ekki farið fram hagsmunamat á áhrifum á börn.
„Við þurfum að finna þessu góðan stað sem er í sátt og samlyndi við samfélagið og næsta nágrenni. Auðvitað staður sem að hentar fyrir þá sem að nýta þessa þjónustu,“ sagði Guðný María. Næsta skref sé að setjast niður með fulltrúum Samhjálpar og fara yfir stöðuna.
Fólk með fíknivanda nálægt tveimur grunnskólum
Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um áformin er Gísli Einarsson, læknir og íbúi í Breiðagerði, sem sagði í vor að áhyggjurnar snúst ekkert um samkennd.
„Í kynningu Samhjálpar kemur fram að kaffistofan sé eingöngu ætluð fullorðnum og að þangað sæki meðal annars fólk sem glímir við fíknivanda og alvarleg andleg og líkamleg veikindi. Það vekur því spurningar að slík starfsemi sé fyrirhuguð í næsta nágrenni við tvo grunnskóla, Breiðagerðisskóla og Hvassaleitisskóla, þar sem samtals eru um 600 börn, í innan við 300 metra fjarlægð,“ sagði hann.
Sjá frétt: Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Engin starfsemi ef hún er hvergi
Grímur ákallar þjóðina og spyr hvar slík starfsemi eigi að vera:
„Hvað gerist síðan þegar sonur, dóttir, mamma, pabbi, maki, besti vinur eða bara þú sjálf(ur) þarf á aðstoð að halda? Spyrjið ykkur að því þegar þið teljið að Kaffistofan eigi alls ekki heima við Grensásveg eða skjólshúsið í Breiðholti. Því ef starfsemin á hvergi heima þá er hún heldur ekki til þegar fólkið ykkar eða þið þurfið á henni að halda.“
Enginn annar staður því fólk býr þar líka
Regína Ásvaldsdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir í færslu á Facebook að hún hafi djúpa samúð með stöðu Samhjálpar.
„Það sem veldur mér miklum áhyggjum er hvernig við sem samfélag höfum sífellt minna þol fyrir þeim sem eru öðruvísi,“ segir Regína.
„Á mínum rúmu fimm árum sem sviðsstjóri velferðarsviðs borgarinnar fengum við mörg svona verkefni sem við þurftum að leysa. Það voru meðal annars staðsetning 20 smáhúsa fyrir heimilislaust fólk með mikinn vanda, nýtt gistiskýli, heimili fyrir konur með geðraskanir og vímuefnavanda, öryggisvistun og svo bygging fjölmargra búsetukjarna. Í nær öllum tilvikum var fyrirhugaðri starfsemi mótmælt en að sama skapi hefur gengið bara ágætlega með öll þessi úrræði, eftir að þau voru tekin í notkun.“
Regína segir fólk hræðast það sem það þekkir ekki. „Fólk hræðist það sem það þekkir ekki og það er því miður ekki neinn „annar staður“ sem hentar því þar býr fólk líka,“ segir hún.
„Það eru gríðarlega mikil samfélagsleg verðmæti fólgin í því að hafa öruggt skjól fyrir fólk sem á í geðheilbrigðis-, eða vímuefnavanda. Í þessum úrræðum starfar fólk sem hefur yfirleitt ástríðu fyrir verkefnunum, gefur hlýju og næringu og eins mikið öryggi og hægt er miðað við aðstæður.“