Fréttir

Þetta eru þau sem spáð er frekari frama í íslensku viðskiptalífi

Mynd
Þetta eru þau sem enduðu á lista Góðra samskipta yfir 40 stjórnendur 40 ára og yngri að þessu sinni

Góð samskipti, ráðgjafafyrirtæki almannatengilsins Andrésar Jónssonar, hefur birt nýjan lista yfir fjörutíu efnilega stjórnendur sem eru 40 ára og yngri, eða 40/40 listann svokallaða. Er stjórnendunum spáð frekari frama í íslensku viðskiptalífi.

Þetta er í fimmta sinn sem listinn er tekinn saman en hann er birtur annað hvert ár, í fyrsta sinn árið 2018.

„Listinn er tekinn saman til að lyfta fólki sem hefur staðið sig vel í því vandasama hlutverki að vera stjórnandi en getur einnig gefið vísbendingu um hverjir gætu átt eftir að taka við æðstu stöðum í íslenskum fyrirtækjum á næstu árum. Vonandi getur hann reynst fleirum gagnlegur en okkur.

Listinn inniheldur fjölmargar fyrirmyndir fyrir það unga fólk sem er að útskrifast úr námi í dag og hefur áhuga á að sækjast eftir ábyrgðarmiklum og krefjandi störfum í viðskiptalífinu en skortir ef til vill haldgóðar upplýsingar um hvernig það geti unnið sig upp í þessi störf. Listinn getur reynst hjálplegur við að sjá hvaða leið aðrir hafa farið og hvaða tækifæri þetta fólk hefur fengið til að sanna sig á leiðinni.“

Segir Andrés mikinn fjölda ábendinga hafa borist að þessu sinni. Við val á listanum hafi verið horft við til þeirra sem eru 40 ára og yngri og náð hafa langt í kröfuhörðu umhverfi eða sinna stjórnunarstöðum sem fela í sér mikla ábyrgð innan íslenskra fyrirtækja. 

„Ekki var eingöngu horft til mannaforráða heldur líka til þess hvort um eitt af lykilverkefnum viðkomandi fyrirtækis sé að ræða. Einnig völdum við í nokkrum tilfellum fólk sem hefur samkvæmt okkar upplýsingum stærra hlutverk innan viðkomandi fyrirtækis en starfstitill þess gefur til kynna. Þá horfum við að lokum til þess hvort við teljum líkur til að viðkomandi hafi metnað og getu til að takast á hendur enn ábyrgðarmeiri störf í framtíðinni. Þá reyndum við að tryggja dreifingu yfir atvinnugreinar og sérsvið.

Til greina á listana komu aðeins stjórnendur innan íslenskra fyrirtækja. Við litum viljandi fram hjá þeim sem stýra eigin fyrirtækjum, frumkvöðlum, ráðgjöfum, Íslendingum sem starfa erlendis og stjórnendum í opinbera geiranum.“

Listann í ár má sjá hér, en röðin á honum er handahófskennd. Á listanum eru meðal annars Ísak Pálmason fjármálastjóri Hagkaupa, Lilja Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Straums, Elvar Þór Karlsson forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans og Heiða Halldórsdóttir starfandi forstjóri Orkusölunnar.