Fréttir

Gunnar Ingi og Andri ráðnir forstöðumenn hjá OK

Mynd
Gunnar Ingi Björnsson og Andri Tryggvason eru nýir forstöðumenn hjá OK.

Gunnar Ingi Björnsson og Andri Tryggvason hafa verið ráðnir forstöðumenn hjá tæknifyrirtækinu OK, eins og segir í fréttatilkynningu.

Gunnar Ingi hefur tekið við starfi forstöðumanns innviðasölu hjá OK. Hann býr yfir víðtækri reynslu af sölu- og markaðsmálum á bæði einstaklings- og fyrirtækjamarkaði og kemur til félagsins frá alþjóðlega dreifingaraðilanum Exclusive Networks þar sem hann starfaði sem sölustjóri á Íslandi. Áður gegndi hann stöðu sölu- og markaðsstjóra Premis sem sameinaðist Opnum Kerfum undir merkjum OK. Gunnar Ingi hefur einnig víðtæka stjórnunarreynslu, meðal annars sem framkvæmdastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar og áður framkvæmdastjóri Heimkaup. 

Andri Tryggvason hefur tekið við starfi forstöðumanns netlausna hjá OK. Hann býr yfir áratugareynslu af net- og tæknilausnum, bæði sem sérfræðingur og stjórnandi. Andri kemur til OK frá Advania þar sem hann gegndi meðal annars stöðu deildarstjóra netrekstrar. Andri hefur einnig víðtæka reynslu af netkerfum og netlausnum, meðal annars hjá Sensa.

„Við erum afar ánægð að fá þá Gunnar Inga og Andra til liðs við OK. Þeir búa yfir mikilli reynslu og þekkingu sem mun nýtast fyrirtækinu vel. Með ráðningu þeirra styrkjum við enn frekar þjónustu okkar við viðskiptavini og sérfræðiþekkingu OK á sínum sviðum,“ segir Gunnar Zoega, forstjóri OK.