Fréttir

Brynja Rut ráðin deildarstjóri hjá Fastus

Mynd
Brynja Rut Blöndal

Brynja Rut ráðin deildarstjóri hjá Fastus

Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki á vörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Fyrirtækið skiptist í Fastus heilsu, sem þjónustar og sérhæfir sig í vörum og ráðgjöf fyrir heilbrigðisgeirann, og Fastus lausnir, sem sér um þjónustu og ráðgjöf fyrir veitingastaði, hótel og fyrirtæki.

Brynja kemur til Fastus frá Samkaupum þar sem hún starfaði síðast sem rekstrareftirlitsstjóri. Hún hafði fyrir það sinnt ýmsum hlutverkum í gegnum miklar breytingar hjá Samkaupum, og vann meðal annars að gagnadrifnum rekstri, greiningum og birgðastýringu hjá fyrirtækinu. Þar áður starfaði Brynja sem ráðgjafi hjá AGR, fyrst í Danmörku, þar sem hún vann með viðskiptavinum víðsvegar á Norðurlöndunum, og síðar á Íslandi. Þá var hún einnig stundakennari í HR samhliða störfum fyrir AGR og kenndi námskeiðið Framleiðsla og birgðastýring.

Brynja er rekstrarverkfræðingur að mennt. Hún er með BSc gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu frá DTU í Danmörku. 

„Við erum afar ánægð og stolt að fá Brynju til Fastus. Hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu úr störfum sínum bæði hér á landi sem og erlendis og styrkir hún enn frekar öflugan hóp starfsfólks hjá fyrirtækinu,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir, forstjóri Fastus.