Fréttir

Er tími Andy Burnham runninn upp?

Mynd
Andy Burnham, þingmaður Verkamannaflokksins. Mynd/Getty

„Keir Starmer mun segja af sér sem ráðherra Bretlands,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á Truth Social í gær. Tók hann þannig í sama streng og flestir fjölmiðlar Bretlands sem telja það líklegt að Starmer tilkynni afsögn sína í dag. 

„Honum hefur mistekist illa í tveimur mikilvægum málaflokkum, INNFLYTJENDAMÁLUM OG ORKUMÁLUM (OPNUM FYRIR OLÍU Á NORÐURHAFI!). Ég óska honum alls hins besta!,“ bætti Trump við. Ef það verður raunin fær Bretland sinn níunda forsætisráðherra það sem af er öldinni.

Samkvæmt breska dagblaðinu Observer varði Starmer helginni á sveitabýli forsætisráðherraembættisins i Chequers með fjölskyldu sinni. 

Mynd
Keir Starmer.
Starmer hefur leitt Verkamannaflokkinn frá 2020 og náði að koma flokknum aftur til valda árið 2024. Mynd/Getty

Fjarað hefur hægt og rólega undir Starmer frá því hann tók við í stórsigri Verkamannaflokksins árið 2024. Kornið sem fyllti mælinn var svo sigur Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóra Manchester, í aukakosningum í síðustu viku, er þá ekkert honum til fyrirstöðu að skora Starmer á hólm sem leiðtoga flokksins og sem forsætisráðherra. 

Margir ráðherrar munu hafa lagt að Starmer að segja þetta gott og gera það á virðulegan máta, þar á meðal Heidi Alexander samgönguráðherra, Ed Miliband orkumálaráðherra og Shabana Mahmood innanríkisráðherra. Heimildarmenn segja að Starmer telji sig illa svikinn, hann hafi fórnað miklu til að koma Verkamannaflokknum aftur til valda og fái ekki þann stuðning sem hann eigi skilið frá þingmannaliði sínu. 

Hver er Andy Burnham?

Andy Burnham nýtur stuðnings stórs hóps þingmanna Verkamannaflokksins sem nýr leiðtogi. Þetta er í þriðja sinn sem hann fer í leiðtogaslag, hann reyndi fyrst árið 2010 þegar Gordon Brown sagði af sér og svo aftur árið 2015 þegar Ed Miliband sagði af sér. 

Gagnrýnendur Burnham hafa sagt hann vera pólitískan vindhana sem skipti um skoðun eftir því sem vindar blása. Hann var á móti því að Bretar segðu sig úr Evrópusambandinu og hefur lýst því yfir hann langi til að sjá Bretland sækja um að nýju í framtíðinni, það sé ekki forgangsatriði. Burnham varð borgarstjóri Manchester árið 2017 og hefur notið töluverðra vinsælda þar meðal kjósenda. 

Starmer áhrifalaus

Burnham ætlaði að fara inn á þing í aukakosningum í janúar síðastliðnum en þá kom Starmer og fylgismenn hans í veg fyrir það. Í vor náði Reform UK flokkur Nigel Farage miklum hæðum í sveitarstjórnarkosningum og þá ákvað Josh Simons að segja af sér þingmennsku til að gefa Burnham tækifæri á að komast í þingmannaliðið. Þingmenn Verkamannaflokksins hafa miklar áhyggjur af góðu gengi Farage og félaga, telja þeir einsýnt að Starmer geti lítið gert en möguleiki sé á að Burnham sé rétti maðurinn til verksins.

Falconer lávarður sagði í samtali við Observer að Starmer gæti lítið annað gert en að segja af sér. „Hann hefur engin áhrif lengur því allir gera ráð fyrir að Andy Burnham sé að fara gegn honum og allir gera ráð fyrir að hann hafi betur.“