fbpx
Mánudagur 28.apríl 2025
Fréttir

Segir virka í athugasemdum afvegaleiða umræðuna – „Hef ekki séð myndum af íslenskum nauðgurum dreift á skemmtistaði“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 28. apríl 2025 09:00

Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Vitundar, Samtaka gegn kynbundnu ofbeldi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þau sem eru reiðust yfir því að útlendingar stundi hér byrlanir og hópnauðganir líta gjörsamlega fram hjá íslenskum gerendum. Ég hef aldrei séð neinn krefjast gæsluvarðhalds á íslenskum nauðgara. Ég hef ekki séð myndum af íslenskum nauðgurum dreift á skemmtistaði og þeim meinaður aðgangur eftir einungis að kæra hafi verið lögð fram. Ég hef heldur aldrei séð einhvern hrópa saklaus uns sekt er sönnuð þegar kemur að útlendum nauðgurum. Þjóðerni, uppruni eða staða í samfélaginu á ekki að skipta máli. Við eigum að vera jafn reið yfir því þegar karlmenn beita konur ofbeldi“

segir Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi.

Guðný segir í grein sinni, sem ber titilinn Ís­lendingar flytja út fisk og líka of­beldis­menn, að reglulega birtist fréttir af karlmönnum með erlent ríkisfang sem brjóta af sér á Íslandi. 

„Um leið fer af stað hvatrænt viðbragð virkra í athugasemdum sem vilja leysa svona mál með því að reka útlendingana úr landi og fylgir oft hatursorðræða gegn trúarhópum eða litarhætti. Þessi orðræða gerir ekkert annað en að afvegaleiða umræðuna og taka fókusinn frá því hvert aðal vandamálið er; ofbeldi karla gegn konum.“

Guðný segir það gefa auga leið að í stækkandi samfélagi stækkar einnig hópurinn sem fremur glæpi, það hefur ekkert með þjóðerni að gera. „Ef við skoðum tölfræði frá lögreglunni og Hagstofu Íslands frá 2024 þá voru 568 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglunnar. Þessar 568 tilkynningar innihalda blygðunarsemisbrot, kynferðislegt áreiti, stafræn kynferðisbrot, kynferðisbrot gegn börnum og nauðgun. Af öllum tilkynntum kynferðisbrotum voru 94% gerenda karlmenn og af þeim 534 tilkynningum voru 29% þeirra með erlent ríkisfang sem gera málin 155. Samkvæmt Hagstofu Íslands búa hér 37.691 karlmenn af erlendum uppruna með fasta búsetu á Íslandi og ef við yfirfærum þessi 155 mál á þann fjölda svarar það 0.41% innflytjenda,“ segir Guðný og heldur áfram:

„En hvers vegna eru erlendir ríkisborgarar þeir sem sæta gæsluvarðhaldi í 70% tilfella? Gæsluvarðhaldi er ekki einungis beitt í rannsókn sakamála. Þessu úrræði er t.d. beitt þegar brottvísa á einstaklingum – einstaklingum sem hafa ekki brotið af sér heldur fá ekki dvalarleyfi.

Burt séð frá allri tölfræðinni er merkilegast í þessu öllu saman að reynt er ítrekað að afvegaleiða umræðuna með því að stýra henni að þessum 0.41% útlendinga sem fremja kynferðisbrot í stað þess að sjá vandamálið sem eru karlmenn sem beita konur ofbeldi. Það er engin sía til, það er ekkert sem aðskilur þá menn frá öðrum í daglegu fasi. Þeir leynast víða.“ 

Hvað með Íslendinga sem brjóta af sér erlendis?

„Það eru þó nokkur dæmi um íslenska menn sem hafa flutt til annarra landa og stundað þar barnaníð, myrt konur og nauðgað þeim. Hefðu þau lönd sem glæpirnir voru framdir einhvern veginn geta síað þessa menn út á landamærunum og sent þá heim til sín? Á hvaða forsendum? Um 5 þúsund Íslendingar fluttu frá Íslandi árið 2024, hvernig eigum við að vita hvort leynist ofbeldismenn þar? Þessi hugsunarháttur gerir ekkert annað en að fría ofbeldismenn ábyrgðinni. Vandamálið er ekki fólksflutningur heldur kynbundið ofbeldi sem er sífellt að færast í aukana.“

Segir Guðný að efla þurfi stjórnvöld og réttarkerfið til að taka betur á þessum málum yfir höfuð. Blákaldur veruleikinn sé sá að sjaldnast eru menn sem kærðir eru fyrir nauðgun settir í gæsluvarðhald, það er algjör undantekning. „Langflest kynferðisbrotamál sem rata á borð lögreglunnar eru felld niður og aðeins um 13% mála fá áheyrn dómstóla. Öryggi kvenna er ekki tryggt í samfélaginu okkar. Menn sem hafa verið kærðir fyrir nauðgun eru frjálsir í samfélaginu okkar. Menn sem hafa verið dæmdir sekir eru frjálsir í samfélaginu okkar á meðan þeir áfrýja. Menn sem hafa nýtt allan áfrýjunarrétt sinn og enda með staðfestingu á dómi eru frjálsir í samfélaginu okkar á meðan þeir ganga frá sínum málum. Dæmdir menn bíða svo að meðaltali í 2.2 ár eftir að byrja að afplána og oft sitja þeir inni í fangelsi um 10% af tímanum og eru þá komnir í opið úrræði.“

Dæmdir íslenskir menn ganga lausir árum saman

Guðný segir brotaþola aldrei frjálsa á meðan öllu þessu stendur. Alltof margir þolendur þurfi að horfa upp á málin sín felld niður og nauðgara ganga lausa. 

„Brotaþolar þurfa að lifa með afleiðingum ofbeldisins og eiga hættu á að rekast á ofbeldismanninn hvar sem er.

Þau sem eru reiðust yfir því að útlendingar stundi hér byrlanir og hópnauðganir líta gjörsamlega fram hjá íslenskum gerendum. Ég hef aldrei séð neinn krefjast gæsluvarðhalds á íslenskum nauðgara. Ég hef ekki séð myndum af íslenskum nauðgurum dreift á skemmtistaði og þeim meinaður aðgangur eftir einungis að kæra hafi verið lögð fram. Ég hef heldur aldrei séð einhvern hrópa saklaus uns sekt er sönnuð þegar kemur að útlendum nauðgurum. Þjóðerni, uppruni eða staða í samfélaginu á ekki að skipta máli. Við eigum að vera jafn reið yfir því þegar karlmenn beita konur ofbeldi.

Ef 0.41% útlendinga sem fremja kynferðisbrot er innflutt vandamál þá mætti alveg eins telja íslenska ofbeldismenn sem brjóta af sér í útlöndum part af okkar útflutningi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þurfti að eyða stórfé í tannviðgerðir en fékk enga miskunn frá Skattinum

Þurfti að eyða stórfé í tannviðgerðir en fékk enga miskunn frá Skattinum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Getur mikil neysla á kjúklingakjöti verið krabbameinsvaldandi?

Getur mikil neysla á kjúklingakjöti verið krabbameinsvaldandi?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Óhugnaður í Urriðaholti: Hafliði hrakti húsbrotsmenn á flótta

Óhugnaður í Urriðaholti: Hafliði hrakti húsbrotsmenn á flótta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Myndband sýnir furðulegan árekstur strætisvagns og jeppa

Myndband sýnir furðulegan árekstur strætisvagns og jeppa