Páfagarður hefur tilkynnt um andlát Frans páfa en hann lést í morgun um klukkan 5:30 að íslenskum tíma. Hann var 88 ára að aldri.
Páfi sást síðast opinberlega í gær, á páskadag, en hann hefur glímt við töluverða vanheilsu undanfarið og lá fyrir skömmu í nokkrar vikur á sjúkrahúsi þar sem hann stríddi meðal annars við öndunarerfiðleika. Á páskadag var vonast til að hann myndi að minnsta kosti ávarpa mannfjölda sem samankominn var á Péturstorginu í Róm en hann hafði ekki heilsu til þess.
Frans tók við páfadómi árið 2013 við afsögn þáverandi páfa, Benedikts XVI. Frans bar áður nafnið Jorge Mario Bergoglio og var frá Argentínu. Hann var erkibiskup í Buenos Aries áður en hann tók við páfadómi. Hann var ekki óumdeildur í heimalandinu og hafði verið þar gagnrýndur fyrir að standa ekki nægilega uppi í hárinu á herforingjastjórninni sem réð ríkjum í landinu á árunum 1976-1983.
Frans lagði áherslu á látleysi og þótti óformlegri en margir forverar hans. Hann mælti mjög fyrir bættum aðstæðum flóttafólks og gagnrýndi hörku yfirvalda meðal annars í Bandaríkjunum gagnvart þessum hópi. Áherslur hans í embætti þóttu um margt frjálslyndari. Frans páfi talaði meðal annars fyrir því að konur fengju aukinn sýnileika innan kaþólsku kirkjunnar og að samkynhneigðum yrði sýnd virðing en ekki fordæming. Hann mælti þó ekki fyrir grundvallarbreytingum innan kirkjunnar, ekki kom til greina að konur gætu orðið prestar eða að samkynhneigðir nytu nákvæmlega sömu stöðu og gagnkynhneigðir.
Óskir Frans páfa um sem minnst tilstand munu fylgja honum í andlátinu en fram kemur í dánartilkynningu frá Páfagarði að útförin verði með einfaldara sniði en fyrri útfarir páfa. Segir í tilkynningunni að með breytingunum. sem gerðar voru að beiðni páfa, sé verið að leggja enn meiri áherslu á að um sé að ræða útför prests og lærisveins Krists fremur en valdamikils manns í hinum jarðneska heimi.
Það kemur ekki fram í tilkynningu Páfagarðs hvenær útförin fer fram og nákvæmlega hvaða breytingar hafa verið gerðar frá útförum forvera páfa.
Næsta skref eftir útförina verður síðan að kardinálar koma saman í sixtínsku kapellunni og kjósa nýjan páfa en eins og margir vita mun það verða mikið sjónarspil með reykmerkjum og klukkum Péturskirkjunnar verður hringt þegar næsti páfi hefur verið kosinn.