fbpx
Laugardagur 19.apríl 2025
Fréttir

Segir bæjarstjórn Seltjarnarnes verða að horfast í augu við raunveruleikann – Uppsafnaður halli 3 milljarðar og þjónusta í molum

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 16. apríl 2025 20:00

Sigurþóra segir hægt að snúa þróuninni við.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurþóra Bergsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar á Seltjarnarnesi, segir að bæjarstjórn Sjálfstæðisflokksins verði að horfast í augu við raunveruleikann og aukna þjónustukröfur og hækka útsvarið. Uppsafnaður halli sé orðinn 3 milljarðar króna og þörf á fjárfestingum til uppbyggingar.

Hjá flestum sveitarfélögum er útsvarið í hámarki, það er 14,97 prósent. Í ellefu sveitarfélögum er það lægra, þar á meðal á Seltjarnarnesi þar sem prósentan er 14,54.

„Á síðasta ári var mikið barnalán á Seltjarnarnesi og 2024 árgangurinn óvenju stór. En það leiðir af sér að erfiðara er að veita börnum pláss. Þar að auki hafa möguleika foreldra á því að koma börnum í einkaleikskóla annars staðar þrengst mjög og svo er ekkert dagforeldri starfandi á Seltjarnarnesi,“ segir Sigurþóra í aðsendri grein á Vísi í dag. „Þetta þýðir að foreldrar barna fædd eftir mars 2024 eru í vandræðum. Þau munu ekki koma börnum sínum í leikskóla fyrr en langt gengið í þriggja ára.“

Ekkert öðruvísi en annars staðar

Sigurþóra segir að það hafi verið ljóst árum saman að þörf sé á átaki í leikskólamálum á Seltjarnarnesi. Hún sé ekki ein um þá skoðun, Sjálfstæðismenn hafa haft það á stefnuskrá sinni fyrir þrjár síðustu sveitarstjórnarkosningar að byggja nýja og stærri leikskóla en það hefur ekki raungerst.

„Enn bólar ekkert á þessum leikskóla og bera menn fyrir sig ýmsar ástæður. Það var covid, það var verðbólgan, það var mygla í skólunum okkar. Ekkert af þessu er öðruvísi í öðrum sveitarfélögum um allt land. Þau hafa öll lent í slæmri myglu sem líkt og á Seltjarnarnesi, sem meðal annars kom til vegna sparnaðar í viðhaldi skólahúsnæðis,“ segir Sigurþóra.

Mikill uppsafnaður halli

Að mati Sigurþóru er vandinn í grunninn afstaða meirihlutans til rekstrar. Hún hafi skilað sífelldum hallarekstri undanfarin ár.

„Meirihluti Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi er haldinn sérkennilegri þráhyggju. Þau hafa rekið bæjarfélagið með halla síðustu 8 ár, uppsafnaður er hann yfir 3 milljarðar, samt halda þau í að rekstur lúti öðrum lögmálum en önnur sveitarfélög,“ segir hún. Bæjarstjórnin sé föst í gömlum tíma. „Hugmyndin er sú að einhvern vegin getum við rekið sveitarfélag nútímans eins og í gamla daga, með mun lægra útsvari þrátt fyrir að þjónustukrafan sé umtalsvert meiri en áður.“

Óskhyggja sem muni ekki enda vel

Nefnir Sigurþóra að það hafi verið stöðug hnignun í þjónustu á Seltjarnarnesi á undanförnum árum. Meðal annars hafi ungmennastarf verið skert, skólarnir verið í svelti og viðhaldi ekki sinnt. Nefnir hún dæmi af Félagsheimili Seltjarnarness, sem hafi verið lokað vegna viðhalds í 5 ár og enn standi ekki til að klára það.

Hún segir vel hægt að leysa vandamálin og það frekar auðveldlega. Meðal annars hafi sveitarfélagið aðgang að húsnæði fyrir leikskóla og ungbarnaleikskóli gæti bætt við sig deild.

„En það er ekki hægt af því að við eigum engan pening á Seltjarnarnesi,“ segir hún að lokum. „Við eigum ekki pening af því að Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi eru í þrjóskukasti og vilja upp á líf og dauða ekki horfast í augu við raunveruleikann og viðurkenna að það þarf að hækka útsvarið. Við getum ekki rekið sveitarfélag með svo háu þjónustustigi, með enga aðra tekjur án þess að íbúar greiði sameiginlega sinn hlut í þeim rekstri. Bara líkt og flestir aðrir íbúar þessa lands gera. Annað er óskhyggja og mun ekki enda vel.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hrottaleg nauðgun á annan í jólum

Hrottaleg nauðgun á annan í jólum
Fréttir
Í gær

Landsnet hvetur starfsfólk til að tilkynna um lögbrot og ámælisverða háttsemi

Landsnet hvetur starfsfólk til að tilkynna um lögbrot og ámælisverða háttsemi
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“

Guðmundur Ingi ver framhaldsskólafrumvarpið – „Ekki stendur til að hætta að líta til námsárangurs“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Misþyrmdi stjúpsonum sínum margsinnis á löngu tímabili

Misþyrmdi stjúpsonum sínum margsinnis á löngu tímabili
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mafíuleg aftaka í Róm – Kínverskur glæpaforingi skotinn til bana ásamt eiginkonu sinni

Mafíuleg aftaka í Róm – Kínverskur glæpaforingi skotinn til bana ásamt eiginkonu sinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Seyðfirðingar reiðir við Landsbankann – Banki í ríkiseigu eigi að þjónusta allt landið

Seyðfirðingar reiðir við Landsbankann – Banki í ríkiseigu eigi að þjónusta allt landið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gervigreindin aðstoðar 9 manna fjölskyldu Arnars við að lækka matarreikninginn – „Höfum við farið niður í 15–20 þúsund krónur á viku“

Gervigreindin aðstoðar 9 manna fjölskyldu Arnars við að lækka matarreikninginn – „Höfum við farið niður í 15–20 þúsund krónur á viku“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Zelenskyy heyrir Rússa hvísla þegar J.D. Vance öskrar

Zelenskyy heyrir Rússa hvísla þegar J.D. Vance öskrar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump fjarlægði málverk af Obama og setti eitt af sjálfum sér í staðinn

Trump fjarlægði málverk af Obama og setti eitt af sjálfum sér í staðinn