Mikil umræða hefur skapast um deilirafhlaupahjól og fráganginn á þeim. Eru margir orðnir pirraðir á því að þau liggi eins og hráviði og teppi gangstéttir, til dæmis fyrir umferð hjólastóla.
„Sem ágætlega duglegur Hopp notandi fer það í mínar fínustu hversu oft ég sé hjólin á víð og dreif, yfirleitt þvert yfir göngustíga,“ segir málshefjandi umræðunnar á samfélagsmiðlinum Reddit. Birtir hann mynd sem sýnir tvö hjól liggja þvert yfir þrönga gangstétt.
„Kannski er það meðvirkni hjá mér að reisa þau alltaf við en ég verð bara að spyrja hvaða sjálfhverfu bjánar eru að skjótast til á þessu og láta þau svo falla bara þar sem þau standa,“ segir hann. „Er þetta kannski ástæðan fyrir því að maður finnur oft hjól á góðri hleðslu sem neitar svo að kveikja á sér vegna þess að rafbúnaðurinn gæti hafa laskast eftir að stýrið hrapaði í gangstéttina?“
Hvað þetta einstaka tilfelli varðar er fólk ekki sammála um. Sumir kenna krökkum um en aðrir segja að vindurinn hljóti að vera sá seki. En þetta er ekki einangrað tilvik og netverjar eru margir sammála um að þetta sé útbreitt vandamál. Það er slæm umgengni varðandi deilirafhlaupahjól.
„Það eru yfirleitt ekki notendur hjólanna sem fara svona með þau, sérstaklega ekki ef þú sérð 4 hjól á hlið á sama stað,“ segir einn sem nefnir vísvitandi skemmdarverk. „Svo er ekki langt síðan haft var uppi á manni sem gekk á milli hjólanna og klippti á vírana.“
Nefnt er að hjá einhverjum fyrirtækjum á Íslandi og á Norðurlöndum þurfi notendur að taka ljósmynd af hjólinu til að sýna fram á hvernig þeir skildu við það. Einn nefndir hins vegar að það skili litlu.
„Þessar myndir eru bara hvítþottur fyrir þessi fyrirtæki, yfirklór til að láta líta út fyrir að þau séu að gera eitthvað,“ segir hann. „Þau hafa allar upplýsingar sem þau þurfa til að sekta þá notendur sem leggja illa án þess að það séu teknar myndir. Vandamálið er að þau vilja hafa þetta svona, að dreifa hjólunum sem víðast og þar sem þau eru sem mest fyrir er stór hluti af markaðáætluninni þeirra. Öll fyrirtæki væru ánægð ef fólk væri bókstaflega dettandi um vöruna þeirra um alla borg, alveg ókeypis og í leiðinni fá þau fría dreifingu. Algjör snilld er það ekki?“
Þá er einnig nefnt að í sumum borgum sé hreinlega bannað að leggja rafhlaupahjólum nema á tilteknum stöðum.
Einn nefnir að þetta sé sérstaklega slæmt fyrir fólk í hjólastólum. Það eigi stundum erfitt með að komast leiðar sinnar vegna þessa.
„Ömurlegt þegar þau eru liggjandi á miðri gangstétt. Skerðir aðgengið fyrir fólk í hjólastól mjög mikið. Hef séð þar sem það var ekki fræðilegur að komast fram hjá hjólunum þar sem þau lokuðu alveg gangstéttinni,“ segir hann. „Það væri best ef bannsvæðunum þar sem er bannað að leggja hjólunum væri fjölgað. Þannig að svæði þar sem eru ítrekuð vandamál verðu að bannsvæði. Og oft eru þau skilin á fáránlegustu stöðum á hjólastígum, sem er alveg stórhættulegt því þetta er ekki allt of augljóst eftir að þetta er dottið niður, og auðvelt að hjóla á þetta, detta og meiða sig.
Annar nefnir að þetta sé einnig mjög hættulegt fyrir aðra vegfarendur. Til dæmis þá sem eru á reiðhjólum.
„Oft eru þau skilin á fáránlegustu stöðum á hjólastígum, sem er alveg stórhættulegt því þetta er ekki allt of augljóst eftir að þetta er dottið niður, og auðvelt að hjóla á þetta, detta og meiða sig,“ segir hann. „Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu þurfa taka sig til og útbúa sérsvæði þar sem þessu er lagt á öruggan hátt. Það er á ekki að vera í lagi að parka þessu hvar sem er, alveg eins og ég má ekki leggja bílnum mínum á miðri aðalbraut.“