Leikskólastjórinn sem um ræðir, Agnes Veronika Hauksdóttir, sagði frá því í Facebook-hópi íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal í gær að hún hefði sagt upp störfum og ákvörðunin hefði ekki verið auðveld.
„En hún varð nauðsynleg eftir persónulegt einelti sem ég varð fyrir í starfi. Ég gerði mitt allra besta fyrir börnin, starfsfólkið foreldra – og þrátt fyrir að alls konar óvæntar uppákomur geti alltaf átt sér stað í flóknum störfum, þá á enginn að þurfa að þola niðurrif eða persónulegar árásir,“ sagði hún í hópnum.
Morgunblaðið greindi frá því í janúar að foreldrar 60 barna í leikskólanum hefðu krafist þess að leikstjórastjórinn viki frá störfum. Í frétt sem Morgunblaðið birti þann 24. janúar kom fram að ýmsar sakir hefðu verið bornar á hana, bæði af hálfu foreldra og nokkurra starfsmanna.
Sökuðu foreldrar hana um brot á lögum og sögðu að hegðun hennar hefði leitt til þess að 17 starfsmenn hið minnsta sögðu upp störfum. Þá viðruðu foreldrar, samkvæmt frétt Morgunblaðsins, áhyggjur sínar af því að faglegt starf í leikskólanum hefði dregist mikið saman og undirbúningur barna fyrir grunnskólanám væri afar takmarkaður.
Í samtali við Morgunblaðið í dag segist Agnes Veronika hafa hætt vegna „hávaða“ en ekki af „faglegum rökum“.
„Það er ekkert sem ég gerði persónulega til að valda því að fólk færi að segja upp. Það er ákvörðun hvers og eins undir hverjum maður vill vinna,“ segir hún meðal annars.