„Nei, það er komið nóg af linkind, nú þarf að bretta upp ermar og fara í tiltekt og fara út með ruslið (erlenda glæpamenn) og fara að lögum og ef það þarf að breyta þeim til að framfylgja því að vísa þessu fólki úr landi, hratt og örugglega, hvort heldur ólöglegum hælisleitendum eða erlendum glæpahópum, þá á að setja það í forgang. Það væri nær að setja fjármagn í þennan málaflokk af alvöru í staðinn fyrir að hervæða önnur erlend ríki í stríði eins og Úkraínu.
Að síðustu eigum við að bjóða upp á góða íslenskukennslu fyrir þá útlendinga sem hafa landvistarleyfi til að koma í veg fyrir stéttaskiptingu annars munum við glíma við sömu glæpaöldina og Svíar og hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa verið að gera. Síðast en ekki síst eigum við að passa upp á okkar hefðir og gildi, sögu og tungumál og halda í okkar sérkenni sem er íslenskt,“
segir Davíð Bergmann áhugamaður um betra samfélag og Miðflokksmaður í grein sinni sem ber titilinn Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður.
„Ef það er hægriöfgaskoðun að telja að það sé ekki í lagi að hér á landi séu á þriðja hundruð ólöglegra hælisleitenda sem eru búnir að fá höfnun fyrir landvistarleyfi og neita að fara. Ef það telst vera hægriöfgaskoðun að það eigi að uppræta erlenda skipulagða glæpastarfsemi hér á landi af alvöru og framkvæma það í verki en ekki bara að tala um það þá viðurkenni ég það fúslega að ég er hægriöfgamaður,“ segir Davíð og vísar í orð lögreglustjórans á Suðurnesjum:
„Það er í raun og veru ekkert í regluverki Evrópusambandsins eða íslensku regluverki sem skyldar okkur til þess að hýsa hér erlenda glæpamenn,“ Þetta er haft eftir lögreglustjóranum á Suðurnesjum, Úlfari Lúðvíkssyni, í viðtali á mbl. 08.04.2025.
Davíð segir að hætta sé á svokölluðum „hægriöfgahryðjuverkum“ og hefur grein sína á ólöglegum hælisleitendum, fjallar svo um skipulagða glæpastarfsemi og „getuleysi íslenskra stjórnvalda í þeim málaflokki og það hjákátlega að halda því fram, eins og kemur fram í skýrslu ríkislögreglustjóra, að helsta hættan fyrir hryðjuverkum hér á landi stafi af hægriöfgamönnum. Þessa þvælu kaupi ég ekki og það er mín skoðun að það sé verið að slá ryki í augu almennings að halda slíku fram. Það hafa ekki verið hægri öfgamenn sem hafa verið að fremja hérna alvarlega ofbeldisglæpi að undanförnu eða að hasla sér völl á íslenskum fíkniefnamarkaði eða koma að skipulögðum glæpum. Það væri nær að setja púður í það að herja á þessa ólöglegu hælisleitendur og koma þeim úr landi, það myndi alla vegana draga úr hættu á svokallaðri „hryðjuverkaárás frá hægriöfgamönnum““, segir Davíð.
„Við eigum ekki að sýna neitt umburðarlyndi fyrir því að hér sé fólk ólöglega í landinu og allra síst þegar við skattgreiðendur þurfum að borga fyrir það. Þetta fólk á að fara strax úr landi. Vandamálið er að hér á landi hefur skapast atvinnuiðnaður sem hefur tekjur af ríkinu eins og lögfræðistofur. Þetta lýðst hvergi í hinum vestræna heimi, að fólk sem hefur engan rétt á að vera hérna geti blóðmjólkað skattgreiðendur þessa lands og á meðan fitna lögfræðiteymin eins og púki á fjósbitanum á sama tíma og gamla fólkið okkar heldur áfram að vera á biðlistum eftir að komast á hjúkrunarheimili eða liggur á rúmum á spítölum landsins sem er dýrasta úrræðið sem er í boði fyrir þjóðfélagið fyrir utan það að stundum þarf það fólk að liggja á göngunum líka.“
Davíð segir að fólkið sem á að vera í forgangi hér á landi sé fólkið sem byggði þetta land upp og skilaði sínu til samfélagsins og átti skilið áhyggjulaust ævikvöld.
„Það á ekki að geyma það fólk í kústaskápum og geymslum á elliheimilum, liggur mér við að segja vegna plássleysis, og hafa það á biðlista við að fá sína sjálfsögðu þjónustu sem það hefur svo sannarlega unnið fyrir í gegnum áratugina. Það á ekki að fara króna í fólk frá íslenskum skattgreiðendum sem er búið að hafna um landvistarleyfi og ef við gerum það er fokið í flest skjól og þá er forgangsröðunin orðin ansi skrýtin hér á landi, með flestalla innviði í vanrækslu.“
Davíð segir kröfuna eiga að vera á hratt og skilvirkt kerfi og ef þurfti að koma upp búðum þá þurfi að gera það.
„NEI þýðir NEI“ PUNKTUR OG BASTA. Ef það þarf að koma upp búðum, eða eins og það er kallað lokað búsetuúrræði tímabundið, þá á að gera það, svona getur þetta ekki verið. Það á ekki að vera í boði að stoðkerfin okkar séu sett á hvolf hvort heldur í heilbrigðiskerfinu eða í menntakerfinu, það er komið nóg af bulli hér á landi í þessum málaflokki. Ef ég færi á svartan lista hjá ríkislögreglustjóra fyrir þessi skrif þá væri það þess virði því það er ekki í boði að hafa þessa umræðu í ritskoðun og að það séu pantaðar niðurstöður sem eiga sér enga stoð í raunheimi og að halda því fram að það séu hægri öfgamenn sem hættan stafar af.“
Davíð bendir á að ef einhverjir eru að fela þá einstaklinga sem hér dvelja ólöglega þá sé það fólk samsekt samkvæmt íslenskum hegningarlögum og „þá á að dæma það og ekki gefa nein grið í því.“
„Ofureinfalt. Ef fólk kemur hingað í þeim eina tilgangi að fremja afbrot á að senda þetta fólk úr landi strax, banna því um landvist hér á landi til æviloka. Ef það þarf að setja á lög um það þá á að gera það og að sjálfsögðu herða landamæragæslu til muna, og það ætti ekki að vera erfitt þar sem við erum eyja úti í Norður-Atlantshafi. Þannig komum við í veg fyrir að skipulögð glæpastarfsemi festi rætur hér á landi og við verndum ungmenni okkar í leiðinni, sköpum pláss í fangelsum landsins við erum ekki að fylla fangelsin af erlendum skipulögðum glæpajurtum sem hafa verið að skjóta hér upp rótum.“
Grein Davíðs má lesa í heild sinni hér.