Potturinn var sjöfaldur og var fyrsti vinningur rétt tæplega 160 milljónir sem konurnar skipta á milli sín. Fær hvor um sig rúmar 79,2 skattfrjálsar milljónir króna í vinning hvor.
Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að önnur sé með miðann sinn í áskrift og sagðist hún aldrei skoða miðann sinn og í raun bara aldrei spá neitt í hann, hún sæi þó vinninga lagða inn á kortið sitt við og við.
„Því kom símtalið sem hún fékk frá Íslenskri getspá á mánudagsmorgun henni skemmtilega á óvart. Konan, sem á stóra fjölskyldu bæði af börnum og systkinum sagðist ætla að halda vinningnum leyndum og að fyrsta verk yrði að greiða upp húsnæðislánið og svo njóta þess að sjá fjárhagsáhyggjurnar hverfa,“ segir í tilkynningunni.
„Hinn vinningshafinn hafði keypt sinn miða í lottóappinu eftir að hafa fengið áminningu í símann um sjöfaldan fyrsta vinning. Ákvað hún því að festa kaup á miða og valdi tölurnar sjálf af handahófi. Hennar fyrsta svar um í hvað peningarnir yrðu notaðir var það sama og hjá hinum vinningshafanum; að greiða strax niður húsnæðislánið og svo að geta gert eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni.“
Íslensk getspá óskar vinningshöfunum öllum innilega til hamingju og akkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.