Fyrirtækið JT Verk, sem hefur sérhæft sig í framkvæmdastjórn við byggingaframkvæmdir, breytti nýverið nafni sínu í JTV.
Að sögn Jónasar Halldórssonar, stofnanda og forstjóra JTV, var ákveðið fyrir tveimur árum að fara í markvissa stefnumótun til að skerpa áherslur og staðfæra fyrirtækið sem leiðandi í umsjón með byggingaframkvæmdum. Nafnabreytingin var ein afurð þessarar vinnu ásamt því að uppfæra ásýnd með nýju lógói og nýrri vefsíðu, eins og segir í tilkynningu.
Jónas er verkfræðingur að mennt og á að baki langan feril í byggingariðnaði. Hann vann á verkfræðistofu til margra ára og var meðal annars hönnunarstjóri við byggingu Hörpu áður en hann fluttist til Noregs. Þar starfaði hann við verkefnastjórn hjá NCC, sem er á meðal fremstu fyrirtækja í byggingariðnaði þar í landi. Þegar Jónas flutti til Íslands 2017 ákvað hann að stofna fyrirtæki byggt á eigin þekkingu og reynslu og innleiða hér á landi þann strúktúr og þau öguðu vinnubrögð við stjórn byggingaframkvæmda sem hann hafði kynnst í Noregi.
„Góð verkstjórn við byggingaframkvæmdir skiptir höfuðmáli og er eitthvað sem við ættum að leggja mun meiri áherslu á hér á landi,“ segir Jónas og bætir við: „Framkvæmdastjórn við verklegar framkvæmdir er sérstakt fag sem nýtur virðingar víða erlendis því það sparar bæði tíma og fé að láta til þess bæra fagaðila sjá um utanumhald stærri framkvæmda.“
JTV leggur höfuðáherslu á fagmennsku og framúrskarandi gæði ásamt því að verkum sé skilað á réttum tíma og ekki síst að þeim fjárhagslega árangri sem lagt er upp með sé náð. „Í byrjun var þetta eins manns fyrirtæki en við höfum stækkað jafnt og þétt þó við höfum ekki borist mikið á og verkefni hafa að mestu komið út á orðspor fyrirtækisins,“ segir Jónas.