Sala á gagnvirkum snertiskjám til kennslu mun vaxa um 7,2% árlega fram til ársins 2030. Slíkur vöxtur er knúinn áfram að samþættingu stafrænna lausna í kennslustofum, að því er fram kom á ráðstefnu um gagnvirkar kennslulausnir frá Optoma, sem haldin var hjá tæknifyrirtækinu OK í liðinni viku.
Á viðburðinum sagði Thomas Christiansen, framkvæmdastjóri hjá Optoma Scandinavia, frá nýjum gagnvirkum lausnum fyrir kennslu. Þá sagði Ben Brown, Optoma UK, um hvernig tæknilausnir hafa nýst sem best í kennslustofum í Bretlandi.
„Optoma Education hefur um árabil unnið náið með kennurum í þróun á notendavænum lausnum til þess að umbreyta kennslustarfi í takt við nýja tíma og -þarfir nemenda. Markmið Optoma er að veita kennurum þau verkfæri sem þeir þurfa til að hvetja, virkja og aðlaga nám að nemendum og gera hverja kennslustund áhrifaríka og meira spennandi,“ segir Gísli Þorsteinsson, forstöðumaður notendalausna hjá OK.
Að lokinni kynningu gátu fundargestir prófað og kynnt sér betur lausnir frá Optoma Education.