„Þetta er rosalega leiðinlegt,“ segir forsvarsmaður þvottahússins Wash Laundromat við Grettisgötu 3. Brást hann við fyrirspurn og frétt DV um vægast sagt óþægilega uppákomu sem viðskiptavinur þvottahússins, maður á sjötugsaldri, lenti í á sunnudag. Ógnandi Rúmener hröktu hann út af staðnum, annar þeirra elti hann upp Skólavörðustíg og sparkaði í hann.
Rúmeninn taldi íslenska viðskiptavininn hafa verið að gera athugsemd um sig og brást reiður við. „Hann varð mjög reiður og sagði: Þú talar ekki um mig, eða eitthvað svoleiðis. Ég er ekkert að tala um þig, svaraði ég og gekk út með símann í höndunum. Hann stökk á fætur og elti mig út. Ég svona hálfhljóp undan honum upp Skólavörðustíginn. Mér var í mun að ástandið færi ekki að stigmagnast upp í einhver slagsmál og vildi frekar forða mér en að lenda í slíku. Ekki síst af því maður hefur lesið margar fréttir um hnífaburð í miðborginni. Þetta var svona rifrildi út af engu sem hefði getað endað illa ef ég hefði ekki gætt mín. Ég reyndi að vera sem rólegastur en hann kallaði: No Police! No Police!“
Óttaðist Rúmeninn greinilega að lögregla kæmi á vettvang. Viðmælandinn segir síðan að maðurinn hafi sparkað í sig, nokkuð fast. „Það kom mér á óvart, sannast sagna,“ segir hann. „Þarna var krökkt af túristum og kínverskir ferðamenn þarna rétt hjá sem horfðu agndofa á þessi ósköp.“
Forsvarsmaður Wash segir að hann og samstarfsmenn hafi skoðað atvikið í öryggismyndavél. Hann kannist vel við Rúmenann sem hafi þarna verið að verki. Sá leggi reyndar ekki í vana sinn að leggjast til svefns á staðnum eins og gerðist þarna og greint var frá í fyrri frétt DV um málið.
Forsvarsmaðurinn viðurkennir að staðurinn sé nokkuð útsettur fyrir misnotkun af þessu tagi. „Það er sjálfsafgreiðsla og enginn á staðnum og við horfum ekki stöðugt á myndavélarnar. Það er bara rosalega leiðinlegt að þetta hafi gerst. Þessi Rúmenar, eða sígaunar, ég veit ekki hvað ég á að kalla þá, þetta kemur í bylgjum, þetta er vandamál í tvær til þrjár vikur í einu, svo hverfa þeir í nokkra mánuði. Þetta er nýlega byrjað aftur, kannski fyrir svona tveimur vikum. Ég bið þá alltaf um að fara burtu þegar ég tek eftir þessu.“
Hann segir að á staðnum sé svokallaður ring-hnappur sem viðskiptavinir geti ýtt á ef eitthvað fer úrskeiðis og sú hringing berst í síma starfsfólks. Einnig sé góð lýsing á staðnum.
Hann segiri að sá maður sem lét svo dólgslega á staðnum á sunnudag sé stundum að spila á harmonikku á almannafæri. „En það er eitthvað meira held ég, án þess að vita það fyrir víst. Maður hefur verið að heyra mikinn orðróm um vasaþjófnað á meðal Rúmena í Reykjavík og ég held að þessir menn séu hluti af þeim hópi.“
„En númer eitt, tvö og þrjú þá er það afskaplega leiðinlegt ef það gerist að fólki líði ekki vel þarna inni. Við ætlum að reyna að bæta okkur og finna leiðir til að fylgjast betur með þessu. Þetta er hvimleitt,“ segir forsvarsmaðurinn, sem vill reyna að sjá til þess að fólk upplifi sig öruggt þegar það nýtir sér þjónustu fyrirtækisins.