fbpx
Þriðjudagur 01.apríl 2025
Fréttir

Kona segist hafa verið neydd með ofbeldi til að taka þátt í stórfelldu fíkniefnabroti en var samt sakfelld

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 28. mars 2025 18:30

Mynd: Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur staðfesti á fimmtudag dóm fyrir konu sem dæmd var í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hlutdeild í stórfelldu fíkniefnabroti. Meðákærði hafði verið dæmdur í átta mánaða fangelsi, óskilorðsbundið.

DV fjallaði um ákæruna yfir parinu í lok sumars árið 2023: Manninum var gefið að sök að hafa keypt 776 stykki af MDMA-töflum í gegnum Whatsapp og greitt fyrir efnin með Bitcoin að verðmæti 150.000 krónur. Fíkniefnin voru send með póstsendingu frá Hollandi til Íslands en sendingin var stíluð á sambýliskonu mannsins, sem var líka ákærð. Fíkniefnin fundust við eftirlit tollvarða í póstmiðstöðinni á Stórhöfða. Lögregla lagði hald á fíkniefnin og rannsakaði þau en kom þeim síðan fyrir á pósthúsinu við Hagatorg. Sambýliskonan fékk tilkynningu um afhendingu pakkans og ók parið saman í bíl að pósthúsinu, þar sem konan sótti pakkann og mannninum hann í bílnum. Var fólkið handtekið í kjölfarið.

Í dómi Landsréttar segir meðal annars um málsvörn konunnar og málsatvik:

„Fyrir Landsrétti rakti ákærða meðal annars atvik þar sem meðákærði hefði verið ógnandi við hana, sett hníf að hálsi hennar og lagt á hana hendur. Eftir það hefði hún ákveðið að gera allt sem hann segði. Hann hefði stjórnað öllu hennar lífiog hún verið mjög hrædd við hann. Hún áréttaði að hún hefði margoft neitað honum um að nota  nafn hennar á póstsendinguna sem um ræðir og sagði hann aldrei hafa nefnt að hún innihéldi fíkniefni heldur að um væri að ræða stera. Þegar þau hafi verið á leiðinni að sækja sendinguna hefði hún fengið þá tilfinningu að ekki væri um stera að ræða en ákveðið að trúa meðákærða. Spurð út í afdrif þeirrar kæru sem hún lagði fram vegna heimilisofbeldis sagðist hún halda að málið hefði verið fellt niður. Ákærða lýsti því einnig meðal annars að áður en hún sótti póstsendinguna hefði meðákærði staðið yfir henni meðan hún borðaði morgunmat og líkamstjáning hans sagt henni að nú væri hún að fara út. Loks lýsti ákærða stöðu sinni í dag og því að málið hefði reynst sér mjög erfitt.“

Sem fyrr segir staðfesti Landsréttur skilorðsbundinn dóm héraðsdóms yfir konunni en hún þarf auk þess að greiða rúmlega eina milljón króna í áfrýjunarkostnað.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ráðleggja Evrópubúum að birgja sig upp – Óttast neyðarástand

Ráðleggja Evrópubúum að birgja sig upp – Óttast neyðarástand
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Pútín hefur sett „samningaleikhús“ í gang – Það er í 5 hlutum og Trump kom til sögunnar í öðrum hluta

Pútín hefur sett „samningaleikhús“ í gang – Það er í 5 hlutum og Trump kom til sögunnar í öðrum hluta
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Könnun Icelandair – Mikill meirihluti hefur áhyggjur af gervigreind í ferðaþjónustu

Könnun Icelandair – Mikill meirihluti hefur áhyggjur af gervigreind í ferðaþjónustu
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Varstu að hugsa um að kaupa allar raðirnar í Lottó? – Þá erum við með slæmar fréttir

Varstu að hugsa um að kaupa allar raðirnar í Lottó? – Þá erum við með slæmar fréttir
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Gómez hvarf á afmæli yngsta barnsins og fannst 10 dögum síðar í Þorlákshöfn – „Þú ert búinn að valda mér og mínum tilfinningalegum skaða“

Gómez hvarf á afmæli yngsta barnsins og fannst 10 dögum síðar í Þorlákshöfn – „Þú ert búinn að valda mér og mínum tilfinningalegum skaða“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Veittust að manni í þvottahúsinu við Grettisgötu – „No Police! No Police!“

Veittust að manni í þvottahúsinu við Grettisgötu – „No Police! No Police!“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Snorri spyr hvort þetta sé í alvörunni umdeild skoðun fámenns hóps – „Hér er talað eins og við séum örlítill grenjandi minnihluti“

Snorri spyr hvort þetta sé í alvörunni umdeild skoðun fámenns hóps – „Hér er talað eins og við séum örlítill grenjandi minnihluti“
Fréttir
Í gær

Notuðu 2.000 lítra af vatni til að slökkva eldinn

Notuðu 2.000 lítra af vatni til að slökkva eldinn
Fréttir
Í gær

Segir að Úkraína verði að velja á milli að verða bandarísk eða rússnesk nýlenda

Segir að Úkraína verði að velja á milli að verða bandarísk eða rússnesk nýlenda