Erlendir ferðamenn rákust á undarlega veru, eða hluta úr veru, á gangi á Breiðamerkursandi. Líktist þetta helst sæskrímsli eða geimveru úr amerískum kvikmyndum.
„Hvað er þetta? Ég sá þessu skolað á land á Breiðamerkursandi?“ segir ferðamaðurinn sem tók myndirnar af verunni undarlegu. Birtir hann myndirnar á samfélagsmiðlinum Reddit og spyr ráða.
Ágiskanir eru margar um hvað þetta sé. Eru þær hins vegar mislíklegar.
„Þetta minnir mig á demógorgon úr Stranger Things,“ segir einn. En það er skrímsli með hálfmennskan búk en höfuð sem minnir helst á blóm.
Annar nefnir að þetta sé eins og geimvera sem kom fyrir í þáttunum um Star Trek.
Nefna sumir að þetta hljóti að vera einhvers konar fiskur. Sem sennilega hafi lent í kjafti sels eða annars rándýrs. Eða þá einhvers konar sæbjúga eða marglytta. Þó eru ekki allir sannfærðir um þær skýringar.
„Í alvörunni samt. Efri og neðri gómur af tönnum, rauðir vefir sem líkjast tálknum, einhvers konar mjúkvefur, en engin fiskbein, uggar eða þykkara brjósk,“ segir einn. „Ef þetta var bráð einhvers dýrs þá tók það alla ómeltanlegu hlutana en skyldi eftir það sem flest önnur dýr myndu éta.“
Veist þú lesandi góður hvað þetta er?