Ung kona sem lagðist inn á meltingar- og nýrnadeild Landspítalans vegna bráðrar nýrnabilunar sakar sjúkraliða á deildinni um ítrekaða og langvarandi kynferðislega áreitni við sig. Nútíminn greinir frá þessu og birtir meðal annars skjáskot af áreitni sjúkraliðans, sem er karlmaður af erlendu bergi brotinn:
Konan greinir frá því að áreitið hafi hafist er sjúkraliðinn var að sinna almennum hjúkrunarstörfum, t.d. mæla blóðþrýsting og hita. Segir hún manninn hafa komið reglulega til sín til að heilsa henni og daðra við hana. Hann hafi hrósað henni fyrir útlit hennar og snert hana með óþægilegum hætti.
„Hann hrósaði mér í gríð og erg hvað ég væri falleg, með falleg augu, fallegt bros, skemmtileg, fyndin. Ég fékk hann til að brosa og hvað ég gerði daginn hans betri bara með því að hann væri sjúkraliðinn minn þann daginn,“ segir konan í viðtali við Nútímann.
Segir hún að þessi athygli hafi verið mjög óþægileg og hún hafi reynt að gefa til kynna með líkamstjáningu sinni að henni mislíkaði þessi framkoma. Er hún þurfti að fá aðstoð við að klæða sig og afklæða hafi hann starað á brjóst hennar.
Konan lá inni á meltingar- og nýrnadeildinni seint í nóvember árið 2023. Hún segir að áreitið hafi haldið áfram eftir útskrift og þá með rafrænum hætti. Hann hafi sent henni ofangreind skilaboð og mörg fleiri á Messenger og sent henni vinabeiðni sem hún samþykkti ekki.
„Þessi maður hefur stalkað mig frá því í nóvember 2023. Hann lætur mig ekki í friði,“ segir konan.
Deildarstjóri meltingar- og nýrnadeildar Landspítalans hefur neitað að tjá sig um málið en starfsfólk á Landspítalanum vitnar um óviðeigandi hegðun mannsins.
Sjá nánar á Nútímanum.