Flugmaður og tvö börn björguðust á eftir flugslys með því að klifra út á væng flugvélar. Þar biðu þau í tólf klukkutíma eftir björgun. Málið er sagt kraftaverki líkast.
Fréttastofan AP greinir frá þessu.
Tilkynning barst á mánudag um að lítil flugvél hefði týnst í Alaska. Var óskað eftir því að sjálfboðaliðar tækju þátt í leitinni.
Einn af þeim var maður að nafni Terry Godes, sem sá tilkynninguna og hélt af stað í sinni eigin flugvél til að leita. Alls fóru um tólf vélar í loftið til að leita en hin týnda flugvél var ekki með neinn neyðarsendi sem gat gefið staðsetninguna til kynna.
Godes hélt í átt að stöðuvatninu Tuskumena, sem er ísilagt stöðuvatn við jökulsporð, sunnarlega í Alaska. Aðstæður voru ekki góðar og skýjahula yfir stóru svæði. En á vatninu sá hann hann flak vélarinnar sem leitað var að, að hluta ofan í ísilögðu vatninu.
„Hjarta mitt brast við að sjá þetta,“ sagði Godes í viðtali. „En eftir því sem ég flaug neðar og neðar sá ég að það voru þrjár manneskjur ofan á vængnum.“
Sagðist hann hafa farið með litla bæn, í þeirri von að fólkið væri á lífi. Sá hann loks að það var raunin.
„Þau voru á lífi og hreyfðu sig,“ sagði hann. Veifuðu þau Godes þegar hann flaug í áttina til þeirra.
Brakið var af vél Piper PA-12 Super Cruiser. Fullorðinn maður hafði farið með tveimur dætrum sínum á táningsaldri í útsýnisflug með þessum afleiðingum.
Goes lét þjóðvarðlið Alaska vita að fólkið væri á lífi og hefðist við á væng vélarinnar við enda Tuskumena vatns. Var þeim bjargað skömmu seinna með þyrlu. Að sögn þjóðvarðliðsins var farið með fjölskylduna á sjúkrahús til aðhlynningar. En meiðsli þeirra væru ekki lífshættuleg. Stúlkurnar voru þurrar en faðirinn hafði á einhverjum tímapunkti farið ofan í vatnið. Hann var þess vegna með einkenni ofkælingar.
„Þau voru langa, kalda, dimma og blauta nótt úti ofan á væng flugvélar sem þau höfðu ekki gert ráð fyrir að gera,“ sagði Godes. Málið allt saman væri kraftaverk, bæði það að fjölskyldan hafi getað haldið sig á vængnum í um tólf klukkustundir og að vélin hafi ekki sokkið ofan í vatnið á þeim tíma. „Það er mjög kalt og dimmt þarna úti á nóttunni,“ sagði Godes.
Ekki liggur fyrir hvers vegna vélin hrapaði. Málið er nú til rannsóknar hjá bandarísku flugmálastofnuninni, FAA.