Neytandi sem keypti kassa af bananabitum frá Freyju furðar sig á vörunni. Í færslu í Facebook-hópnum Vertu á verði-eftirlit með verðlagi vekur hann athygli á málinu, en það er þó ekki verðlagið eða varan sem slík sem hann furðar sig á.
„Vil taka það fram fyrst að ég veit vel að þessi vara er alger óþarfi, en við erum nú mannleg og kaupum stundum óþarfa.
Að því sögðu langaði mig bara að vekja athygli á þessari stórfurðulegu umbúðasóun og blekkingarleik um magn. Pakkinn af þessum Bananabitum frá Freyju kostaði mig 539 kr í Bónus. Gott og vel. En eins og sjá má af myndum er innihaldið minna en helmingur af því sem stærð umbúðanna gefur til kynna.“
Birtir neytandinn myndir með máli sínu til stuðnings. Má þar sjá að bitarnir í plastinu fylla um ⅔ af kassanum.
„Það er auðvitað verið að reyna að blekkja mann, svo maður haldi að maður sé að fá meira fyrir peninginn. Það er nógu slæmt. En verra svíður þó allt þetta óþarfa plast og pappír. Eitthvað hlýtur það þó að kosta fyrir fyrirtækið að framleiða svona sóun en greinilega þess virði.
Vek athygli á síðustu myndinni, bananabitunum hrúgað í kassann án plasts. Þetta er náttúrulega hlægilegt.“
Á þeirri mynd má sjá að bitarnir eru aðeins botnfylli í kassanum.
Eins og sjá á myndunum er þyngd vörunnar tilgreind á umbúðunum.