fbpx
Miðvikudagur 26.mars 2025
Fréttir

Helgi Seljan harðorður: „Ég held að menn ættu að skammast sín fyrir það“ – Silfrið í gærkvöldi á allra vörum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 25. mars 2025 10:30

Helgi Seljan. Mynd/Skjákot RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, var til umræðu í Silfrinu á RÚV í gærkvöldi.

Þar ræddi Sigríður Hagalín Björnsdóttir við þau Eirík Hjálmarsson, Ólöfu Skaftadóttur, Evu H. Önnudóttur og Helga Seljan um afsögn Ásthildar Lóu, viðbrögðin í kjölfarið og þá gagnrýni sem fjölmiðlar hafa fengið á sig, þá einna helst RÚV, síðustu daga.

Helgi, sem kom að vinnslu umfjöllunarinnar um mál Ástu Lóu, sagði að auðvitað væri þetta mikið tilfinningamál og það væri eðlilegt að það vekti tilfinningar hjá fólki.

„En þegar fólk er farið að ráðast á fréttamanninn – sem er auðvitað ekkert nýtt – og ég ætla líka að fá að segja að þetta er held ég í þriðja eða fjórða skiptið sem ég kem hérna í þennan þátt til þess að ræða um það hvers vegna fréttir eru sagðar í fjölmiðlum. Það er ekkert eðlilegt, það er stundum eins og einu fréttaskýringarnar á Íslandi séu fréttamenn að réttlæta það að þeir séu að vinna vinnuna sína,“ sagði Helgi.

„Menn hafa notað ógeðsleg orð“

Sigríður Hagalín spurði kollega sinn að því hvort leita hefði mátt betri skýringa áður en fréttin fór í loftið eða hvort fréttamenn hefðu farið fram úr sér við vinnslu málsins.

„Ég veit ekki hvernig við hefðum átt að gera þetta öðruvísi þegar við stöndum frammi fyrir því að það hringt í hana (Ásthildi Lóu) um morguninn og það er þrýst á það stanslaust allan daginn að fá hennar sjómarið fram,“ sagði hann og var ómyrkur í máli um hvernig talað hefur verið um Ólöfu Björnsdóttur, fyrrverandi tengdamóður barnsföður Ásthildar Lóu, síðustu daga.

„Því hefur líka verið haldið fram að Ólöf Björnsdóttir, tengdamóðir mannsins, að umfjöllunin hafi verið byggð á henni fyrst og fremst og menn hafa notað ógeðsleg orð um þessa konu undanfarna daga og ég held að menn ættu að skammast sín fyrir það. Það liggur alveg fyrir í fréttinni og fyrir alla sem vilja hlusta á hana – og ættu kannski að gera það aftur – er að hún byggir líka á viðtali við Eirík. Þar er hans sjónarmiða getið, nákvæmlega eins og sjónarmið ráðherrans koma fram í fréttinni um leið og hún kemur í þetta viðtal.“

Farið að bera á „trumpísku“

Ólöf Skaftadóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, tók undir með Helga og sagði ekkert hafa komið fram sem getur varpað rýrð á fréttaflutning RÚV á fimmtudag.

„Oft eru fréttamenn gagnrýndir, oft að ósekju en stundum á það rétt á sér, en það sem mér hefur kannski fundist í þessu máli er að hér erum við með stjórnmálamenn sem eru í æðstu stöðum sem eru farnir að nota svona ákveðna „trumpísku“ til að trampa á fréttamönnum og gera lítið úr þeim og þeirra trúverðugleika og miðlana sem þeir starfa við – og það á ekkert bara við um Ríkisútvarpið,“ sagði hún.

„Gáttaður á þessu bulli“

Margir hafa lagt orð í belg á samfélagsmiðlum um umfjöllunina í Silfrinu og beinist gagnrýni sumra að því að gagnrýni á umfjöllunina hafi fengið lítið vægi. Eiríkur Hjálmarsson, sem var lengi vel fréttamaður, var sá eini í settinu sem var mjög gagnrýninn á framsetningu RÚV.

„Búið að fægja Silfrið,“ sagði Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar og fyrrverandi fjölmiðlakona. „Vona mér verði ekki boðið í matarboð með þessu „silfri“,“ sagði Jón Viðar Jónsson í athugasemd undir.

„Þetta var fjölmiðlahvítþvottur. Ég hefði viljað sjá meiri auðmýkt því fjölmiðlamenn geta verið fljótfærir eins og barnamálaráðhera var. Ríkisfjölmiðill þarf ekki að vera fyrstur með fréttirnar heldur þarf hann að vanda sig til að búa ekki til gróusögur,“ sagði Elín Erna Steinarsdóttir á vegg Bjargar Evu.

„RÚV tekur viðtal við sjálft sig um málefni Ásthildar Lóu og hennar afsögn,“ sagði Glúmur Baldvinsson, alþjóðastjórnmálafræðingur og sonur Jóns Baldvins Hannibalssonar. „Ég er gáttaður á þessu bulli,“ bætti hann svo við.

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra, gat þó séð spaugilegu hliðarnar.

„Í miðju netfárinu um fyrrverandi barnamálaráðherra stóð það eftir í Silfrinu sem prýðisgóður álitsgjafi sagði, Eva Önnudóttir prófessor, að hún yrði ekki vör við nein læti á netinu. Á hennar fb kæmi ekkert inn nema hundamyndir og rektorskjör. Hún lifir semsagt hinu kyrrláta, friðsæla lífi sem ég er alltaf að leita að. – Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað..?”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Telja að valkyrjurnar hafi hlaupið á sig og efa að Ásthildur snúi aftur á þing – „Ég horfi bara á bugaða manneskju“

Telja að valkyrjurnar hafi hlaupið á sig og efa að Ásthildur snúi aftur á þing – „Ég horfi bara á bugaða manneskju“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Haukur hraunar yfir RÚV og segir sannleiksgildi hafa verið sniðgengið og falsfréttir fluttar – „Jók á tortryggni og trúnaðarbrest“

Haukur hraunar yfir RÚV og segir sannleiksgildi hafa verið sniðgengið og falsfréttir fluttar – „Jók á tortryggni og trúnaðarbrest“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Karl Steinar: Lögregla gæti kallað til fleiri hundruð óbreytta Íslendinga ef allt fer í skrúfuna

Karl Steinar: Lögregla gæti kallað til fleiri hundruð óbreytta Íslendinga ef allt fer í skrúfuna
Fréttir
Í gær

Meintur brotaþoli var kærður fyrir árás á Hauk – Lögregla felldi niður málið og ákærði Hauk fyrir manndrápstilraun

Meintur brotaþoli var kærður fyrir árás á Hauk – Lögregla felldi niður málið og ákærði Hauk fyrir manndrápstilraun
Fréttir
Í gær

Bandarískir ráðamenn ræddu óvart viðkvæm hernaðarmálefni við blaðamann Atlantic

Bandarískir ráðamenn ræddu óvart viðkvæm hernaðarmálefni við blaðamann Atlantic