Það eru útsendarar Rússar sem standa að baki „ríkisvæddum hryðjuverkum“ í því skuggastríði sem Rússland háir gegn Evrópu.
Þetta sagði Kaja Kallas, hin valdamikla stjórnmálakona sem fer með utanríkismál í framkvæmdastjórn ESB.
Hún lét þessi ummæli falla eftir að nýjar upplýsingar komu fram um úthugsaðar aðferðir Rússar þegar kemur að sífellt fleiri skemmdarverkum, njósnum, dreifingu falskra upplýsinga og öðrum aðgerðum, sem er ætlað að raska jafnvæginu í Evrópu.
Samkvæmt rannsókn, sem átta ríkisfréttastöðvar í Evrópu, gerður þá hafa Rússar staðið á bak við að minnsta kosti 60 blendingsárásir í Evrópu. Sænska ríkisútvarpið, sem tók þátt í gerð rannsóknarinnar, skýrir frá þessu.
Thomas Nilsson, yfirmaður Must, sem er leyniþjónusta sænska hersins, sagði að árásunum fari fjölgandi og verði sífellt alvarlegri. „Rússar vilja kljúfa NATÓ og ESB og veikja samfélagið okkar og sá frjóum vantrausts,“ sagði hann einnig.
Blaðamenn ríkismiðlanna átta rannsökuðu fjölda blendingsárása á síðasta ári og það sem af er þessu ári.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós það sama og vestrænar leyniþjónustustofnanir hafa ítrekað varað við: að Rússar noti í sífellt meiri mæli milliliði við árásirnar. Þetta geta til dæmis verið afbrotamenn eða aðrir sem eru ráðnir til starfa í gegnum Internetið og fá greitt fyrir skítverkin.
Í Belgíu villti blaðamaður VRT á sér heimildir og komst inn í rúmlega 8.000 manna tölvuþrjótahóp, sem styður Rússa, á samfélagsmiðlinum Telegram. Hann þóttist vera búsettur í Brussel og að hann væri stuðningsmaður Rússa. Honum tókst að vinna traust liðsmanna hópsins sem hefur staðið fyrir árásum á heimasíður hins opinbera í Belgíu.
Í samskiptum á Internetinu, sem minntu á atvinnuviðtal, var blaðamaðurinn spurður út í viðhorf hans til Rússlands og skömmu síðar fékk hann fyrsta verkefnið. Hann átti að líma tíu límmiða með textanum „Fuck NATÓ, í miðju ESB-hverfinu í Brusse. Fyrir þetta átti hann að fá 50 dollara greidda í rafmynt.