fbpx
Þriðjudagur 25.mars 2025
Fréttir

Guðmundur Ingi um slysið sem breytti öllu – Davíð Oddsson bjargaði lífi hans

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 24. mars 2025 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Kristinsson er nýr mennta- og barnamálaráðherra eftir að Ásthildur Lóa Þórsdóttir sagði af sér fyrir helgi. Segja má að Guðmundur Ingi hafi góða reynslu en hann hefur verið þingmaður Flokks fólksins frá árinu 2017.

En hver er þessi viðkunnanlegi maður sem Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, hrósaði í hástert í gær? Jón sagði að það væru góðar fréttir að hann tæki við sem ráðherra.

„Ég hef starfað með Guðmundi Inga í Velferðarnefnd þar sem hann hefur stýrt formennsku af lipurð og dugnaði. Hann er einstaklega ljúfur og viðkunnanlegur maður í viðkynningu og ég hlakka til að halda áfram að starfa með honum sem ráðherra og að málefnum barna. Toppmaður!,“ sagði þingmaðurinn og fyrrverandi borgarstjórinn.

Bílslys og biðlisti

Guðmundur Ingi er fæddur í Reykjavík þann 14. júlí árið 1955, sonur Kristins Jónssonar og Andreu Guðmundsdóttur. Eiginkona Guðmundar er Hulda Margrét Baldursdóttir myndlistarkona.

Guðmundur Ingi lauk gagnfræðaprófi frá Ármúlaskóla trésmíðadeild 1972 og svo námi við trésmíðadeild Iðnskólans í Reykjavík árið 1974. Á árunum 1974 til 1980 starfaði hann sem lögreglumaður í Grindavík og Keflavík og svo sem afgreiðslumaður í versluninni Brynju á árunum 1981 til 1993. Hann sat svo í trúnaðarráði VR á árunum 2004 til 2012 og hefur verið formaður BÓTar, baráttu- og samstöðufélags fyrir bættum kjörum lífeyrisþega og gegn fátækt á Íslandi, frá árinu 2010.

Guðmundur Ingi hefur – eins og Flokkur fólksins almennt – lengi barist fyrir því að bæta lífsskilyrði þeirra sem hafa lítið á milli handanna. Guðmundur Ingi, sem styðst við hækjur, var sjálfur öryrki í 24 ár áður en hann var kjörinn á þing í lok október 2017 en hann lenti í alvarlegu umferðarslysi árið 1993 og þurfti þá að leita á náðir almannatryggingakerfisins.

Í einlægu viðtali sem birtist í DV árið 2017 sagði hann meðal annars:

„Ég lenti í fyrsta bílslysinu 1993 og það sem verra var þá lenti ég líka á biðlista. Þegar ég var loksins búinn í aðgerð og var að jafna mig þá fór mjóbakið, þá þurfti ég að fara í aðra aðgerð. Ég var búinn að æfa stíft, búinn í námi og kominn á gott skrið í desember 1999 þegar ég lenti í seinna slysinu; eldri ökumaður fór yfir á rangan vegarhelming og skall beint framan á bílinn minn.“

Davíð Oddsson kom til bjargar

Í viðtalinu sagði Guðmundur Ingi að hann hefði verið stálheppinn að vera á lífi.

„Miðað við það sem læknarnir sögðu mér á sínum tíma þá hefði ég átt að verða hjólastólsmatur fyrir meira en áratug. En ég gefst ekki upp, ég þjálfa líkamann og fer reglulega í sund, það heldur mér gangandi, bókstaflega,“ sagði Guðmundur í viðtalinu og hló.

„Ég veit hins vegar að hryggurinn er hægt og rólega að síga niður, það sést á röntgenmyndum. Það er vont, en það venst.“

Í viðtalinu kom fram að barátta Guðmundar við kerfið hafi byrjað þegar hann var á biðlista eftir aðgerð á árunum 1993 til 1995.

„Ég var búinn að vera meira en ár á biðlista þegar ég hringdi inn í beina línu DV í Davíð Oddsson og hann sagði að ég ætti ekki að vera á biðlista, þá fékk ég loksins að fara í aðgerðina. Þá var heflað af hryggnum, settar tvær stálplötur, bein úr mjöðm og átta skrúfur. Læknirinn sagði að ef ég hefði hnerrað þá hefði ég hæglega getað lamast. Það má segja að Davíð Oddsson og DV hafi bjargað lífi mínu.“

Inga Sæland gaf sig ekki fyrr en hann fór í framboð

Segja má að Guðmundur sé sjálflærður sérfræðingur í almannatryggingakerfinu. Hann fór að berjast fyrir bótaþega og gegn fátækt á Íslandi sem formaður samtakanna Bót. Í viðtalinu við DV var rifjað upp að í mótmælum fyrir utan Alþingishúsið hafi Guðmundur hitt Jón Þór Ólafsson, þingmann Pírata, sem kom honum inn í endurskoðunarnefnd laga um almannatryggingar. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sá hvað í honum bjó og gaf sig ekki fyrr en hann samþykkti að fara í framboð fyrir Flokk fólksins. Nú er Guðmundur Ingi orðinn ráðherra.

Guðmundur Ingi var ómyrkur í máli í viðtalinu á sínum tíma og sagði að mannvonska væri innbyggð í kerfið.

„Það vill enginn vera á bótum, maður þarf alltaf að passa sig og sem öryrki fékk ég alltaf hroll þegar einhver sagði að það ætti að leggja heilmikið fé inn í eitthvað tengt almannatryggingakerfinu, því ég veit að þá verður peningurinn tekinn af okkur annars staðar. Það er alltaf verið að plata, þess vegna eru svo margir skelfingu lostnir gagnvart kerfinu.“

Guðmundur Ingi í viðtali við DV árið 2017, skömmu eftir að hann var kjörinn á þing í fyrsta sinn.
Guðmundur Ingi í viðtali við DV árið 2017, skömmu eftir að hann var kjörinn á þing í fyrsta sinn.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Jákvæð rekstrarafkoma fimmta árið í röð 

Jákvæð rekstrarafkoma fimmta árið í röð 
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Haukur hraunar yfir RÚV og segir sannleiksgildi hafa verið sniðgengið og falsfréttir fluttar – „Jók á tortryggni og trúnaðarbrest“

Haukur hraunar yfir RÚV og segir sannleiksgildi hafa verið sniðgengið og falsfréttir fluttar – „Jók á tortryggni og trúnaðarbrest“
Fréttir
Í gær

Áfellist RÚV og segir lágmark að hafa staðreyndir um einkalíf stjórnmálamanna réttar

Áfellist RÚV og segir lágmark að hafa staðreyndir um einkalíf stjórnmálamanna réttar
Fréttir
Í gær

Meintur brotaþoli var kærður fyrir árás á Hauk – Lögregla felldi niður málið og ákærði Hauk fyrir manndrápstilraun

Meintur brotaþoli var kærður fyrir árás á Hauk – Lögregla felldi niður málið og ákærði Hauk fyrir manndrápstilraun
Fréttir
Í gær

Albani sem grunaður var um fíkniefnasölu rekinn úr landi – Gekk í málamyndahjónaband til að fá að dvalarleyfi

Albani sem grunaður var um fíkniefnasölu rekinn úr landi – Gekk í málamyndahjónaband til að fá að dvalarleyfi
Fréttir
Í gær

Urðar yfir Hallgrím í löngum reiðilestri um hálfs árs gamalt viðtal – „Sumt einfaldlega gerir maður ekki. Maður sýnir sorg annarra virðingu“

Urðar yfir Hallgrím í löngum reiðilestri um hálfs árs gamalt viðtal – „Sumt einfaldlega gerir maður ekki. Maður sýnir sorg annarra virðingu“