Þór Símon Hafþórsson, sonur Ásthildar Lóu sem hún eignaðist með yngri pilti fyrir 35 árum síðan, hefur stigið fram. Hann segist stoltur af því hvernig móðir hans hafi tekist á við þessar aðstæður.
„Áður en ég byrja vil ég þakka öllum þeim sem hafa sent mér skilaboð, hringt eða bara hugsað til mín og fjölskyldu minnar síðustu daga. Það hefur verið ómetanlegt að finna fyrir þeim stuðningi á erfiðum tímum,“ segir Þór Símon í færslu á samfélagsmiðlum. „Ég er ótrúlega stoltur af því hvernig mamma hefur tekist á við þessar aðstæður, eins og ég hef alltaf verið stoltur af henni. Hvernig hún barðist með kjafti og klóm fyrir mig og mína vellíðan þegar ég lenti í einelti í grunnskóla. Hvernig hún barðist fyrir húsinu okkar og aleigu eftir hrun gegn ofurefli og gafst aldrei upp. Hvernig hún hlífði mér og bróðir mínum fyrir öllu gríðarlegu stressinu sem fylgdi á þeim tíma. Hvernig sú barátta leiddi hana í að berjast fyrir aðra sem höfðu lent í sömu klóm og hún í gegnum Hagsmunasamtök heimilanna og að lokum hvernig sú barátta leiddi hana á þing og að lokum í ráðherrastól fjórum árum síðar. Hún hefur alltaf verið frábær mamma, staðið sig mjög vel sem þingmaður og síðan ráðherra þótt í því embætti hafi hún fengið allt of stuttan tíma til að sanna sig.“
Segist hann stoltur af því hvernig móðir hans bar sig í sjónvarpsviðtali við RÚV þegar hún sagði af sér embætti. Sjálfur hafi hann verið ein tilfinningahrúga og vafalaust hefði hann ekki komið upp einu orði í slíku viðtali án þess að brotna niður.
„Í mínum huga er hún algjör ofurhetja. Ég er, og mun alltaf vera, stoltur af því að vera sonur hennar,“ segir Þór Símon. „En vegna fréttaflutnings á fimmtudag og þá sérstaklega vegna þess hvernig þær fréttir voru framsettar er búið að gera þetta stolt mitt tortryggilegt í augum almennings. Dómharkan sem ég hef orðið var við þrátt fyrir að hafa forðast eftir bestu getu alla frétta- og samfélagsmiðla frá því á fimmtudag var viðbúin en er engu að síður sorgleg.“
Segir hann staðreyndir mikilvægar í fréttaflutningi af viðkvæmum málum sem þessum. Það hafi ekki verið gert fyrr en yfirlýsing móður hans hafi verið birt. Þá var skaðinn skeður.
„Fyrstu fréttir af þessu máli voru fullar af rangfærslum sem voru til þess fallnar að mála mömmu mína upp sem eitthvað skrímsli,“ segir Þór Símon. „Rangfærslur sem hefði auðveldlega verið hægt að komast hjá ef mamma mín hefði fengið færi á að benda á þær fyrir birtingu fréttarinnar. Ég er ekki að fara fram á að þessi frétt hefði ekki verið birt yfir höfuð heldur einungis vandaðra vinnubragða þar sem gætt var hennar hliðar á málinu. Áherslur í fyrstu fréttum báru þess merki að það var ekki gert og í þeim fólst því fordæming og dómur byggður á einhliða upplýsingum.“
Fullyrðingar um að móðir hans hefði verið leiðtogi eða leiðbeinandi hefðu verið rangar. Aldur blóðföðurs hans hafi verið námundaður niður í þann tíma þegar þau hittust fyrst en ekki þegar þau áttu í sambandi. Aldur móður hans hafi að sama skapi verið námundaður upp í þann tíma þegar hún eignaðist Þór Símon. Samkvæmt lögum þess tíma var blóðfaðir hans orðinn fullorðinn og sams konar sambönd ekki óalgeng.
„Við getum auðveldlega hrist hausinn í dag, 36 árum síðar, og spurt “hvað var hún að spá?” En veruleiki hennar og blóðföður míns var allt annar þá en hann er í dag. Mér finnst það vera gríðarlega mikilvægt í öllu samhengi málanna. Fram til 1996 hafði sjáflræðisaldurinn á Íslandi verið sá sami í um 700 ár. Samfélagið og gildismat okkar hefur þannig tekið stökkbreytingum á síðustu áratugum. Að mínu mati er ósanngjarnt að ætla að styðjast við nútíma viðhorf og lög yfir atburði sem gerðust fyrir bráðum fjörutíu árum,“ segir Þór Símon.
Hvað meinta tálmun varði þykir honum það hlægilegt. Ekki sé við móður hans að sakast að hann hafi ekki átt samband við blóðföður sinn á æskuárunum og hvað þá núna.
„Það var aldrei neinn feluleikur í kringum faðerni mitt. Mamma sagði mér frá honum þegar ég var pínulítill,“ segir Þór Símon. „Ég man eftir að hafa hitt hann einu sinni þegar ég var sirka 8 ára og sýndi honum Fifa 98 leikinn minn. Í stað þess að slá því fram að hann hafi “einungis” fengið tvær klst á mánuði með mér sem, eins og marg ítrekað var í fréttinni fréttinn að samsvari 24 klukkustundum á ári hefði kannski verið vert að spyrja hversu margar af þessum 24 klukkustundum hann nýtti til samveru með mér? Þau skipti er hægt að telja á fingrum annarrar handar. Einnig vil ég benda á að mamma mín hefur aldrei, ekki í eitt einasta skipti, talað illa um eða niður til blóðföðurs míns í mín eyru. Hvorki þegar ég var lítill eða þegar ég tjáði henni að ég væri að fara að hitta hann þegar ég var orðinn fullorðinn.
Ég og blóðfaðir minn hittumst fyrir tilviljun sumarið 2009 þegar hann kom á þáverandi vinnustað minn til að setja upp fiskabúr. Hann kynnti sig, við mæltum okkur mót og áttum eina góða kvöldstund saman þar sem ég hitti konu hans og hálf-systkini mín og er það góð minning. Hann lagði inn á mig pening einhverjum mánuðum síðar til að styrkja mig á meðan ég var í námi erlendis og ég þakkaði honum fyrir það með skilaboðum á Facebook. Það voru síðustu samskipti okkar, það er að segja fyrir fimmtán árum.“
Þór Símon segist ekki vilja mála blóðföður sinn upp sem vonda manneskju. Það sé hins vegar búið að draga fjölskylduna inn í fjölmiðlastorm. Því miður sé hann í „hinu liðinu.“
„Ég eignaðist minn pabba, Hafþór Ólafsson, í kringum eins árs aldurinn. Ef einhver spyr mig hver pabbi minn er þá er það hann og enginn annar. Ég gæti ekki hafa óskað mér betri pabba en hann. Skortur á sambandi við blóðföður minn hefur því aldrei hvílt á mér að neinu leyti þangað til á fimmtudaginn og þá því miður vegna tilvistar hans frekar en fjarveru.“