fbpx
Mánudagur 10.mars 2025
Fréttir

Skagafjörður í mál við „týnd félög“ vegna félagsheimilis

Jakob Snævar Ólafsson
Mánudaginn 10. mars 2025 12:30

Félagsheimilið Höfðaborg á Hofsósi er skráð undir heitinu Skólagata. Mynd/Skjáskot/Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir helgi var í Lögbirtingablaðinu birt stefna sveitarfélagsins Skagafjarðar á hendur ýmsum félögum. Er markmiðið að 100 prósent eignarréttur sveitarfélagsins yfir fasteigninni Skólagötu á Hofsósi verði staðfestur. Krefst sveitarfélagið þess að öll réttindi félaganna sem snúa að eigninni verði felld niður. Kemur fram í stefnunni að flest félaganna séu ekki skráð hjá hinu opinbera og að ekki séu skráðir neinir stjórnarmenn. Í stefnunni eru félögin flest sögð vera „týnd“ og virðist sú fullyrðing eiga við rök að styðjast.

Skólagata er samkvæmt Fasteignaskrá 884,8 fermetrar að stærð. Brunabótamat eignarinnar er 487.050.000 króna en fasteignamat 113.300.000 króna.

Samkvæmt stefnunni var húsið upphaflega félagsheimili og er í daglegu tali kallað Höfðaborg en það nafn er skráð undir lýsingu á eigninni í Fasteignaskrá.

Málið er höfðað á hendur Kvenfélaginu Öldunni, Söngfélaginu Hörpu, Ungmennafélaginu Höfðstrendingi, Ársæl verkalýðsfélagi og Ungmennafélaginu Geisla, eða hverjum þeim öðrum sem telji til eignarréttar yfir húsinu.

Sveitarfélagið krefst viðurkenningar á 100 prósent eignarrétti þess yfir eigninni og að öll réttindi félaganna verði felld niður og afmáð úr þinglýsingarbókum.

Fram kemur að sveitarfélagið sé einn af þinglýstum eigendum hússins og að umrædd félög séu samkvæmt þinglýsingargögnum sögð vera handhafar eignarréttinda í fasteigninni eða hver sá sem telji til þeirra réttinda.

Hálfrar aldar saga

Í stefnunni er saga málsins rakin. Samkvæmt grunnleigusamningi dagsettum 30. janúar 1975 seldi þáverandi Hofsóshreppur í Skagafirði, lóð á leigu undir Félagsheimilið Höfðaborg Hofsósi. Eigendur eru þar upptaldir Hofsóshreppur, Hofshreppur, Verkalýðsfélagið Ársæll, Kvenfélagið Aldan, Ungmennafélagið Höfðstrendingur, Ungmennafélagið Geisli, Fellshreppur og Söngfélagið Harpa. Frá því leigusamningurinn var gerður hafa Hofsóshreppur, Hofshreppur og Fellshreppur sameinast og orðið að sveitarfæelaginu Skagafirði ásamt fleiri hreppum. Í skjalinu koma ekki fram eignarhlutföll hvers leigutaka að lóðinni.

Í stefnu Skagafjarðar er lögð áhersla á að frá því að sveitarfélagið varð til árið 1998 með sameiningu sveitarfélaganna í firðinum hafi það eitt staðið straum af rekstrar- og viðhaldskostnaði af fasteigninni og hafi aðrir eigendur ekki tekið þátt í þeim kostnaði. Samkvæmt fasteignayfirliti Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar séu eignarhlutföll eigenda sögð 0 prósent og sé eignarheimildin framangreindur grunnleigusamningur frá 30. janúar 1975.

Hvergi skráð

Í stefnunni kemur fram að ekkert sé vitað um afdrif þinglýstra eignenda, annarra en Skagafjarðar og Verkalýðsfélagsins Ársæls, en það félag hafi verið afskráð þann 1. mars 2021 án þess að hlut félagsins í fasteigninni hafi verið ráðstafað annað. Ekki sé vitað um afdrif annarra eigenda þ.e. Kvenfélagsins Öldunnar, Söngfélagsins Hörpu, Ungmennafélagsins Höfðstrendings og Ungmennafélagsins Geisla. Félögin séu ekki með kennitölu og séu hvorki skráð í Þjóðskrá eða hlutafélagaskrá. Það séu því rúm 50 ár  síðan grunnleigusamningurinn var gefinn út og ljóst að frá sameiningu sveitarfélaganna í Skagafirði, fyrir 27 árum, hafi enginn þessara þinglýstu eigenda nýtt réttindi sín að fasteigninni.

Þegar leitað er að umræddum félögum í fyrirtækjaskrá Skattsins kemur fram skráð er félag sem heitir Kvenfélagið Aldan en skráð stofnár er 1981, 6 árum eftir að leigusamningurinn var gerður. Félagið er ennfremur skráð til heimilis í Eyjafirði og því líklega ekki um sama félag að ræða. Annað kvenfélag með sama nafni er skráð á Húsavík en það var stofnað 2009. Einnig finnast í fyrirtækjaskrá tvö félög sem bera heitið Ungmennafélagið Geisli, annað á Húsavík en hitt í Súðavík. Skráður stofndagur beggja er eftir að samningurinn um eignina á Hofsósi var gerður og því líklega heldur ekki um að ræða félagið sem stefnan beinist að.

Sagan

Um Söngfélagið Hörpu segir á vefnum Glatkistan að það hafi verið starfandi á Hofsósi á árunum 1969-1983.

Þegar leitað er að Kvenfélaginu Öldunni á Hofsósi í netheimum kemur fyrst upp minningargrein úr Morgunblaðinu frá 1993 um fyrrum formann félagsins, Pálu Pálsdóttur. Þar kemur fram að félagið hafi verið stofnað 1950. Starfsemi þess virðist hins vegar hafa lagst niður undir lok síðustu aldar. Ársskýrsla félagsins frá 1992 finnst einnig en engin nýrri merki um starfsemi þess finnast í fljótu bragði.

Ungmennafélagið Höfðstrendingur var samkvæmt vef Ungmennasambands Skagafjarðar stofnað 1917 og var skráð sem aðili að Ungmennasambandinu Skagafjarð en er það, samkvæmt nýjustu handbók sambandsins, ekki lengur. Sama á við um skráningu Ungmennafélagsins Geisla. Engin merki um nýlega starfsemi þessara ungmennafélaga finnast við stutta leit í netheimum.

Það virðist því sem starfsemi allra þeirra félaga sem nefnd eru í stefnunni, fyrir utan verkalýðsfélagið Ársæl, hafi lagst af og legið niðri í töluverðan tíma án þess að félögin hafi nokkurn tímann verið afskráð með formlegum hætti.

Fallin niður

Í stefnu Skagafjarðar segir að skýrt sé að réttindi þessara „týndu félaga“ til umræddrar fasteignar séu fallin niður en til að fá úr því skorið sé stefnan nauðsynleg.

Vísar Skagafjörður til þess að umrædd félög fyrir utan Ársæl verkalýðsfélag, hafi í raun aldrei verið stofnuð og að því hafi þau í raun aldrei verið bær sem lögformlegur eigandi umræddra eignarréttinda.
Ársæll verkalýðsfélag hafi verið afskráð 1. mars 2021 en hlut félagsins í fasteigninni ekki ráðstafað annað. Það sé því ljóst að réttindi félagsins yfir fasteigninni sé fallin niður og hafi enginn gert tilkall til réttindanna.

Lögð er enn fremur áhersla á að ekki liggi neitt fyrir um hvert sé eignarhald umræddra félaga. Engar upplýsingar sé að finna um fyrirsvarsmenn, eigendur eða stjórnarmenn þessara félaga. Þá sé engar upplýsingar um að þeim hafi verið slitið. Engir aðrir aðilar en sveitarfélagið hafi gert tilkall til fasteignarinnar. Vill sveitarfélagið einnig meina að það hafi öðlast eignarrétt yfir eigninni á grundvelli þess að hafa alfarið séð um hana síðan 1998.

Forsvarsmönnum umræddra félaga er stefnt fyrir Héraðsdóms Norðurlands vestra í næsta mánuði til að leggja fram gögn í málinu og halda fram rétti sínum. Miðað við að eitt félaganna hefur verið formlega lagt niður og að engin starfsemi virðist hafa verið í hinum síðan á síðustu öld virðist ólíklegt að nokkur muni mæta fyrir hönd félaganna

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jörfi opnar nýja fagverslun í Grænum iðngörðum á Akranesi

Jörfi opnar nýja fagverslun í Grænum iðngörðum á Akranesi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvetur flugfarþega til að gera ekki sömu mistök og hún gerði

Hvetur flugfarþega til að gera ekki sömu mistök og hún gerði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reynsluboltar hjóla í Björn: „Hissa að sjá þaulreyndan blaðamann skrifa af svona barnaskap“

Reynsluboltar hjóla í Björn: „Hissa að sjá þaulreyndan blaðamann skrifa af svona barnaskap“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virðist ekki fá nóg af því að senda Vestmannaeyjabæ fyrirspurnir

Virðist ekki fá nóg af því að senda Vestmannaeyjabæ fyrirspurnir